Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/4687
Í þessari greinargerð til B.Ed-prófs er fræðileg umfjöllun um lestrarnám ungra barna og helstu kennsluaðferða- og lestrarlíkön er styðja við lestrarnám barna auk handbókar ætlaðri kennurum, uppalendum og foreldrum til undirbúnings og þjálfunar fyrir hið eiginlega lestrarnám. Í upphafi er fræðileg kynning á lestrarnámi, síðan er gerð grein fyrir hljóðkerfisvitund og hljóðvitund og munur þeirra útskýrður. Því næst er komið inn á hvernig þjálfa megi hljóðkerfis- og hljóðvitund, umskráning kynnt og síðan er farið í þróun og ferli lesturs.
Að lokum er fjallað um lestur og mál og í kjölfarið er fjallað um lestrarlíkanið byrjendalæsi, kenningar Hoover og Gough og lestrarlíkanið „The Simple View of Reading“. Farið er í gegnum mismunandi lestrarkennsluaðferðir og kynntar eru: hljóðaaðferðin, LTG aðferðin og byrjendalæsi.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Tinna_greinargerd_des2009_fixed.pdf | 454.25 kB | Open | Greingerð | View/Open | |
Tinna_handbok_des2009_fixed.pdf | 992.35 kB | Locked | Handbók | ||
Kapa_Tinna_des2009_fixed.pdf | 65.07 kB | Open | Kápa greingerðar | View/Open | |
sam-sérhljóðaspjold_fixed.pdf | 79.86 kB | Open | Samhljóð og sérhljóða spjöld | View/Open | |
sporunarblad_A4_fixed.pdf | 449.13 kB | Open | Sporunarátt stafrófsins | View/Open |