Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/46936
Bakgrunnur: Notkun vímuefna í æð er helsta smitleið lifrarbólgu C og meirihluti nýrra sýkinga er rakinn til notkunar á menguðum sprautubúnaði. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun stefnir að útrýmingu lifrarbólgu C fyrir árið 2030 en Ísland uppfyllti þau skilyrði í kjölfar meðferðarátaks árið 2020. Landspítalinn og skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins hófu samstarf til að viðhalda þeim góða árangri sem hafði náðst, um að veita hjúkrunarstýrða heilbrigðisþjónustu á vettvangi þar sem einstaklingum sem nota vímuefni í æð var boðin skimun og lyfjameðferðgegn lifrarbólgu C í þeirra nærumhverfi.
Tilgangur: Var þríþættur, 1) að skoða hvort einstaklingar sem nota vímuefni í æð nýti tækifæri til skimunar og meðferðar gegn lifrarbólgu C á vettvangi; 2) að lýsa niðurstöðum skimunar og meðferðar sem veitt var í samstarfsverkefninu; og 3) að fá innsýn í upplifun þjónustuveitenda af því að veita heilbrigðisþjónustu á vettvangi með því að taka viðtöl við þá aðila sem störfuðu á vettvangi.
Aðferð: Rannsóknin var blönduð megindleg og eigindleg rannsókn, notast var við skýrandi raðsnið. Rannsóknin byggðist á gögnum sem safnað var á vettvangi samstarfsverkefnisins. Einnig var gögnum safnað með hálfstöðluðum viðtölum við fimm starfsmenn í vettvangsþjónustu fyrir jaðarsetta hópa og þekktu til samstarfsverkefnisins.
Niðurstöður: Á tímabilinu nóvember 2022 til nóvember 2023 var 94 einstaklingum sem nota vímuefni í æð boðin skimun við lifrarbólgu C og 76 einstaklingar (81%) þáðu skimun. Af skimuðum voru 46 (61%) með jákvæð mótefni og 15 (20%) með virka sýkingu. Af þeim 18 sem hófu lyfjameðferð á tímabilinu hlutu 12 (67%) lækningu með neikvæðu prófi 12 vikum eftir
meðferðarlok. Greind voru fimm þemu í viðtölunum; 1) Týndi hópurinn, 2) Heimilisleysi og áskoranir við að ná til skjólstæðingahópsins, 3) Traust þjónustuþega til meðferðarveitenda, 4) Sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið, 5) Margþættur vandi einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
Ályktanir: Æskilegt er að tryggja skimun og meðferð við lifrarbólgu C verði áfram aðgengileg í nærumhverfi jaðarsettra einstaklinga sem nota vímuefni í æð ef Ísland á að ná að viðhalda markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar 2030. Einnig er þörf á að þróa og
veita sama hópi fjölbreyttari heilbrigðisþjónustu á vettvangi og eru hjúkrunarfræðingar í góðri stöðu til að beita sér fyrir úrbótum.
Lykilorð: Lifrarbólga C, einstaklingar sem nota vímuefni í æð, hjúkrun, skaðaminnkun
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_rannsókn-blb-lhs-rrj.pdf | 1,23 MB | Lokaður til...15.06.2026 | Heildartexti | ||
ld.pdf | 471,94 kB | Lokaður | Yfirlýsing |