Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47079
Inngangur. Langvinn lifrarbólga C (HCV) er alvarlegur sjúkdómur sem getur valdið skorpulifur og lifrarfrumukrabbameini. Á árinu 2016 fór af stað meðferðarátakið TraP HepC sem beindist að því að veita verjuhemjandi meðferð við HCV á Íslandi. FibroScan sem mælir lifrarstífleika var notuð fyrir meðferðina til að meta bandvefsmagn í lifur. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þróun bandvefjar í lifur eftir lyfjameðferðina og áhættuþætti fyrir bandvefsbreytingum.
Aðferðir. Sjúklingar sem höfðu fengið meðferð með veiruhemjandi lyfjum og farið í FibroScan á árunum 2016-2024 með marktæka fíbrósu, stig III-IV (> 9.5 kPa). Nýtt FibroScan var framkvæmt og helstu áhættuþættir fyrir lifrarsjúkdómum s.s. áfengisofnotkun og offita rannsökuð. Fyrri lifrarstífleiki var borinn saman við nýju mælinguna. Tengsl við áhættuþætti metin og þeir bornir saman á rannsóknartímabilinu.
Niðurstöður. Af þeim sem höfðu undirgengist FibroScan fyrir veiruhemjandi meðferðina voru alls 95 með marktæka fíbrósu, stig III-IV. Á þeim tíma höfðu 34/95 (36%) látist. Af þeim sem voru lifandi tókst að mæla 37/61 (61%) sjúklinga (18% konur, meðalaldur 59), eftirfylgnitími milli mælinga 6.9 ár. Miðgildi lifrarstífleika fyrir meðferðina var 17.2 (10.7-27.2) kPa og 7.3 (5.4-14.1) kPa eftir meðferð (p<0.01). Alls minnkaði lifrarstífleiki hjá 31 (91%) en hækkað hjá 3 (9%). Hátt BMI og reglubundin áfengisnotkun höfðu marktæk tengsl við aukinn lifrarstífleika. Ályktun. Margir höfðu látist frá upphafi meðferðarátaks, bæði vegna lifrartengdra og lifrar ótengdra dánarorsaka. Lifrarstífleiki sem mælikvarði á bandvef í lifur hafði minnkað marktækt hjá sjúklingum eftir að hafa losað sig við veiruna. Sjúklingar með aðra áhættuþætti fyrir lifrarsjúkdómi höfðu minni lækkun eða aukningu í fibrósu eftir meðferðina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bandvefsbreytingar í kjölfar meðferðar gegn lifrarbólgu C.pdf | 1,09 MB | Lokaður til...16.05.2026 | Heildartexti | ||
Skemman_yfirlysing.pdf | 207,06 kB | Lokaður | Yfirlýsing |