is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47102

Titill: 
  • Þróun innlagna ungmenna á Vog og vímugjafaneyslu árin 2000-2023: Mögulegar skýringar og breytingar á tímabilinu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ágrip
    Inngangur: Algengasti aldur fyrstu meðferðar á Sjúkrahúsinu Vogi er 19 ár en á árunum 2000-2023 voru þar 14.693 innlagnir ungmenna á aldrinum 13-25 ára. Frá stofnun SÁÁ árið 1977 og með aukinni áfengis- og kannabisneyslu á níunda áratugnum hefur neyslumynstur ungs fólks á vímugjöfum þróast, meðal annars með neyslu vímugjafa í æð, vaxandi neyslu amfetamíns, kókaíns, metýlfenidats og nú síðast ópíóíða. Um aldamótin varð mikil aukning á vímugjafaneyslu ungs fólks og var þá byggð sérstök unglingadeild á Vogi. Kannanir Rannsókna & greiningar sem hófust rétt fyrir aldamótin hafa varpað ljósi á þróun vímugjafaneyslu ungmenna og stutt við íslenska forvarnarmódelið á þessu tímaskeiði. Í dag sker Ísland sig úr með einna minnsta vímugjafaneyslu unglinga í Evrópu. Rannsóknin miðar að því að meta nýgengi innlagna 13-17 ára og 18-25 ára einstaklinga á Vog árin 2000-2023 og vísbendingar um skýribreytur eins og forvarnir, breytt viðhorf til innlagna unglinga og neyslumynstur þeirra á tímabilinu.
    Efniviður og aðferðir: Afturskyggn greining gerð á meðferðarinnlögnum á Vog á árunum 2000-2023. Fjöldi innlagna einstaklinga og fjöldi heildarinnlagna beggja kynja var leiðréttur í hverjum aldurshópi samkvæmt gögnum frá Hagstofunni. Einnig voru fengnar upplýsingar úr innlendum vímugjafakönnunum Rannsókna & greiningar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.
    Niðurstöður: Innlögnum 13-25 ára ungmenna á Vog hefur farið stöðugt fækkandi frá aldamótum, úr 9,5/1000 árið 2003 hjá ólögráða hópnum í 4,5 árið 2017 og 20/1000 hjá þeim eldri árið 2000 í 7,5 árið 2023. Ungir karlar (18-25 ára) voru tvöfalt líklegri til að leggjast inn á tímabilinu en konur. Ungar stelpur (13-18 ára) voru þá hlutfallslega fleiri en þær eldri á tímabilinu. Neysla ungs fólks sem leggst inn hefur færst frá áfengi yfir í sterkari efni, nú síðast ópíóíða, en kannabisneysla innlagðra hefur breyst minna á tímabilinu.
    Ályktanir: Fækkun innlagna 13-25 ára ungmenna á Vog á tímabilinu á sér líklega ýmsar skýringar. Meðal þeirra eru tilkoma íslenska forvarnarmódelsins og þróun aðgengis og þjónustu ungs fólks á Vogi. Mikilvægt er að fylgjast vel með þróun notkunar nýrra efna og breyttu notkunarmynstri vímugjafa og nýta slíka þekkingu til reglulegrar aðlögunar á forvörnum hér á landi.

Samþykkt: 
  • 17.5.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47102


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þróun innlagna ungmenna á Vog og vímugjafaneyslu árin 2000-2023.pdf902,97 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlysing.pdf204,99 kBLokaðurYfirlýsingPDF