Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47130
Lóðréttur landbúnaður felur í sér nýja tækni til að framleiða grænmeti. Þessi nýja framleiðsluaðferð er að ryðja sér til rúms víða um heim en með henni meðal annars er verið að mæta kröfum um fæðuöryggi, sjálfbærni og heilnæm matvæli. Hún gefur einnig ríkjum, þar sem framleiðsluaðstæður eru erfiðar frá náttúrunnar hendi, ákveðin tækifæri sem ekki voru áður fyrir hendi. Lóðréttum landbúnaði fylgir hins vegar umtalsverður stofn- og fjármagnskostnaður auk þess sem tæknin er enn í þróun og því ákveðin óvissa um hvert hún leiðir.
Markmið þessarar ritgerðar er að greina núverandi grænmetismarkað og svara þeirri spurningu hvort tækifæri felist í lóðréttum landbúnaði til að auka grænmetisframleiðslu á Íslandi. Ísland hefur ákveðna styrkleika hvað varðar lóðréttan landbúnað en þeir felast m.a. í aðgangi að vatni og hreinni orku, og aukning innlendrar framleiðslu rímar vel við
stefnu stjórnvalda, en áskoranirnar eru hár fjármagnskostnaður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ritgerð lokaútgáfa Illugi.pdf | 922,2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
IMG_8594.png | 945,7 kB | Lokaður | Yfirlýsing | PNG |