is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47139

Titill: 
  • Ábyrg ferðaþjónusta: Ávinningur og áskoranir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kröfur stjórnvalda um stefnu ferðaþjónustufyrirtækja í sjálfbærni hafa verið settar í drög að aðgerðaráætlun sem leið til að ná markmiðum hennar sem eru að ferðaþjónustan á Íslandi verði leiðandi í sjálfbærni. Ábyrg ferðaþjónusta var sett á laggirnar til þess að veita fyrirtækjum stuðning og hvatningu í markmiðasetningu og stefnu í sjálfbærni og í dag eru 400 ferðaþjónustufyrirtæki þátttakendur. Í þessari ritgerð verður farið yfir stöðu ferðaþjónustunnar og einkenni minni ferðaþjónustufyrirtækja ásamt hugtökum tengt sjálfbærri ferðaþjónustu og ábyrgri ferðaþjónustu. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á ávinning og áskoranir við innleiðingu sjálfbærni markmiða ferðaþjónustufyrirtækja sem skráðu sig til þátttöku í ábyrgri ferðaþjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þrátt fyrir að fæst fyrirtækjanna hafi náð markmiðum verkefnisins að þá er mikið starf verið að vinna í sjálfbærni innan fyrirtækjanna. Helstu áhrifaþættir á stöðu sjálfbærni hjá fyrirtækjunum er þekking stjórnenda, tímaskortur og mannauður. Einnig er árstíðarsveifla og dreifing ferðamanna annar mikilvægur þáttur.

Samþykkt: 
  • 21.5.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47139


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ábyrg ferðaþjónusta BS.pdf709,2 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing.pdf182,19 kBLokaðurYfirlýsingPDF