Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/47214
Tölvusneiðmyndarannsókn er nú aðal myndgreiningarrannsóknin þegar vafi leikur á hvort um brot í hálshrygg sé að ræða. Þar sem stærsti hluti geislaálags vegna læknisfræðilegrar myndgreiningar er af völdum TS tækja hafa verið sett fram landsviðmið. Landsviðmið voru sett fram af ICRP með það að markmiði að bera kennsl á óvenju háa geislaskammta við notkun jónandi geislunar og rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að uppfæra verkferla reglulega með það í huga að gefa sem minnstu mögulegu geislaskammta á sjúkling, en þó án þess að draga úr greiningarhæfni myndanna. Markmið rannsóknarinnar var því að kanna hvort geislaskammtar við tölvusneiðmyndarannsóknir af hálshrygg á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) væru undir erlendum landsviðmiðum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Diplómaritgerð - Írena Rut.pdf | 833.38 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Yfirlýsing-Írena.pdf | 58.65 kB | Locked | Declaration of Access |