Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47284
Efla verkfræðistofa tók að sér hönnun á öllum almennum raflögnum, lýsingu, verklýsingu og magntöku í nýtt útibú Landsbankans á Akureyri. Verkefnið er stórt og krefjandi og felur í sér teymisvinnu margra einstaklinga sem vinna að sameiginlegu markmiði.
Við vinnu verkefnisins verður meðal annars farið yfir þann búnað sem notaður er í verkinu eins og t.d. rafmagnstöflur og netkerfi, tenglar og almennur raflagnabúnaður og hvað þarf að hafa í huga við hönnun á rafkerfi í húsnæði. Teymisvinna er mikilvægur partur af hönnun og voru haldnir vikulegir fundir með verkkaupa og arkitekt til að vera viss um að allar ákvarðanir varðandi staðsetningar og þarfir á búnaði væru í lagi og jafnvel teknar í sameiningu. Notast var við BIM umhverfi til að forðast árekstra við önnur kerfi.
Rafkerfi Landsbankans á Akureyri skal halda flækjustigi í lágmarki en þó þarf að hafa í huga að verið er að hanna banka. Þar eru kröfur gerðar um mikið öryggi og góðan vinnustað þar sem starfsfólki getur liðið vel.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Landsbankinn Hofsbót 2-4 - Hönnun á rafkerfi, verklýsing og magntaka.pdf | 27,87 MB | Lokaður til...01.01.2028 | Heildartexti | ||
| gisligudmannlokun.pdf | 433,08 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |