is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47392

Titill: 
  • Stafrænt ofbeldi : netníð á samfélagsmiðlum
Námsstig: 
  • Meistara
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Stafrænt ofbeldi: Netníð á samfélagsmiðlum
    Hugtakið stafrænt ofbeldi er víðtækt og nær yfir margs konar og ólíka háttsemi sem framin er með notkun tækja og tækni. Vegna örra tækniframfara á undanförnum áratugum stendur alþjóðasamfélagið frammi fyrir umfangsmiklum vanda sem felst í skorti á lagalegum úrræðum til að sporna gegn háttseminni. Lögfesting og þróun refsiákvæða hefur ekki haldist í hendur við þróun stafrænna ofbeldisbrota. Netníð er umfangsmikið og vaxandi vandamál í samfélaginu. Ekki er að finna nein refsiákvæði í íslenskum lögum sem taka sérstaklega á háttseminni og þarf því í mörgum tilvikum að heimfæra þessa tegund ofbeldis til refsiákvæða sem sett voru fyrir löngu síðan og ekki með slíka háttsemi í huga. Í ritgerðinni verður leitað svara hversu gróf eða umfangsmikil ærumeiðandi ummæli á stafrænum miðlum þurfa að vera til að háttsemin teljist refsiverð og hver eru úrræði þolenda og heimildir lögreglu til að bregðast við stafrænu ofbeldi. Farið verður yfir mannréttindaákvæðin sem togast á og fjallað um alþjóðlega samninga sem hafa það að markmiði að sporna við tölvubrotum. Þá verður farið yfir íslenska og norræna refsilöggjöf sem snýr að ærumeiðingum og heimfærslu til refsiákvæða í dómaframkvæmd. Í framhaldinu verður veitt innsýn inní upplifun þolenda stafræns ofbeldis og fjallað um heimildir lögreglu og rannsóknarúrræði í slíkum málum. Netníð er almennt ekki refsivert á Íslandi þar sem refsilöggjöf hefur ekki þróast í takt við tækniframfarir. Vitundarvakning um mikla útbreiðslu stafræns ofbeldis á samfélagsmiðlum hefur leitt til þess að pólitísk öfl hafa sett baráttuna gegn stafrænu ofbeldi í fararbrodd baráttumála. Það er langt í land og það tekur langan tíma að fara í stórfelldar lagabreytingar en í millitíðinni er vert að skoða hvort hægt sé að gera einfaldar lagabreytingar á gildandi lögum til að fanga háttsemina og auka með því vernd þolenda og úrræði lögreglu.

  • Útdráttur er á ensku

    Digital violence: Cyber harassment and bullying on social media
    The term digital violence is broad and covers a variety of behaviors using technical devices and digital media. Due to the rapid technological progress in recent decades, the international community is faced with a vast problem, i.e., the lack of legal means to counter the conduct. Legislation and the development of criminal provisions have by no means gone hand in hand with the development of digital violent crimes. Cyber harassment is an extensive and growing problem in society. There are no specific penal provisions in Icelandic law that capture the conduct, and therefore in many cases, this type of violence must be attributed to penal provisions that were set a long time ago, not with such conduct in mind. In the essay it will be explored when cyber harassment on social media becomes punishable. The human rights provisions will be reviewed and further explored how they limit each other's rights and international conventions that aim to provide protection from digital violence explored. Going forward I look at the Icelandic and Nordic penal code provisions in matters of defamations and their application in judicial practice, how victims perceive their efficiency and what recourses and permissions the police have in matters of digital violence. Cyber harassment and cyber bullying are generally not punishable in Iceland as the legislation has not developed hand in hand with technology. Raised awareness has led to political forces putting the fight against digital violence at the forefront. There is still a long way to go and implementing comprehensive legislation takes time but, in the meantime, it is worth exploring if simple adjustments to current legislation to capture the conduct and simultaneously increase protection of victims and police resources.

Samþykkt: 
  • 28.5.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47392


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ML_ Ritgerð_Stafrænt ofbeldi - Netníð á samfélagsmiðlum.pdf910,2 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna