is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47395

Titill: 
  • Þingrof : birtingarmynd þingrofs á grundvelli 24. gr. laga nr. 33/1944 í íslenskri stjórnskipun og túlkun ákvæðisins
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er þróun á beitingu og túlkun þingrofsákvæðis 24. gr. stjórnarskrárinnar í íslenskri stjórnskipun sem og að kanna hvort beiting þingrofs sé gagnslaust til valdtemprunar. Þingrofsheimildin kom fyrst inn í íslenska stjórnskipun árið 1874 og hefur að mestu haldist óbreytt til ársins 1991. Fyrir breytingarnar fól þingrof í sér að fellt var úr gildi umboð þingmanna fyrir lok kjörtímabils og var því störfum þingsins lokið þar til nýtt var kjörið. Þessu var breytt með stjórnskipunarlögum nr. 56/1991 og halda þingmenn nú umboði sínu til kjördags. Breytingarnar gerðu það að verkum að þingrofsdagur og kjördagur falla samdægurs sem og að tryggja að landið verði ekki þinglaust við þingrof. Þingrof er því að mestu ákvörðun um kjördag, þó vissulega stytti það kjörtímabil löggjafarþings og þingmanna. Höfundur telur að þessar breytingar hafi grafið undan meginreglu íslenskar stjórnskipunar um þrískiptingu ríkisvaldsins. Þingrofum á grundvelli 24. gr. stjskr. hefur verið beitt tíu sinnum hér á landi. Þingrofin árin 1931 og 1974 voru án efa þau umdeildustu, en þar beittu forsætisráðherrar þingrofi til að komast hjá vantrausti á ríkisstjórn sína. Túlka skal þingrofsheimildarinnar með hliðsjón af öðrum ákvæðum stjórnarskrárinnar er segja til um stöðu og valdheimildir forseta. Með tilliti til 11., 13. og 14. gr. stjskr. er það forsætisráðherra sem hefur tillögurétt um þingrof. Þó blasir það við að forseti er sá sem staðfestir eða hafnar þingrofsbeiðni, enda verður hann ekki þvingaður til stjórnarathafna, sbr. 19. gr. stjskr. Leiða má líkur að því að aðkoma forsætisráðherra og forseta sé ófrávíkjanlegt skilyrði þingrofs á grundvelli 24. gr. stjskr. og því má slá föstu að það þurfi tvo til að rjúfa þing, enda mæla bæði stjórnarskráin og venjur til um slíkt.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis explores the dissolution of parliament provision outlined in Article 24 of the Icelandic constitution, analyzing its application and interpretation. It also questions whether dissolution serves as a meaningful limitation on the parliament's power. Dissolution has been a part of the Icelandic constitution since 1874, and remained largely unchanged until 1991. Prior to the changes implemented by Constitutional Act No. 56/1991, dissolution effectively ended the work of parliament until a new one could be elected. However, today's members of parliament retain their mandate until election day, and dissolution and elections occur on the same day, ensuring that the country is never without a parliament. Despite this, the author notes that these changes have weakened the principle of separation of powers within the Icelandic constitution. To date, Article. 24 has been invoked ten times in Iceland, with the dissolutions of 1931 and 1974 being the most controversial, as the prime ministers used dissolution to avoid a vote of no confidence in their government. The power to dissolve parliament must be interpreted in conjunction with other constitutional provisions that define the role and powers of the president. While the prime minister proposes a dissolution according to Article. 11, Art. 13, and Article. 14, the president retains the authority to approve or reject the request, as he cannot be compelled to carry out governmental acts in accordance with Article. 19. Therefore, it is clear that the presence and approval of both the prime minister and the president are essential prerequisites for a dissolution, as both the constitution and precedent dictate it.

Samþykkt: 
  • 28.5.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47395


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ML ritgerð PMP.pdf1,47 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna