Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47447
The purpose of this study was to explore whether social media affects jealousy and insecurity in romantic relationships. There were 367 participants, which were selected by voluntary response sampling. A questionnaire was put up to measure the connection between social media usage, jealousy, and insecurity. There were four hypotheses put forward in this study. The results supported hypothesis 1 since women had a higher level of jealousy and insecurity overall. Hypothesis 2 was not supported since more frequent use of social media did not result in individuals displaying more jealousy or insecurity. Hypothesis 3 was supported since the findings showed that individuals who had ended a previous relationship due to something that occurred on or was related to social media are more likely to be jealous. Hypothesis 4 was supported since bisexual individuals showed greater levels of jealousy and insecurity compared to people with other sexual orientations. This study provides a good insight into the effects of social media on romantic relationships. More research on this topic could be important to find ways to improve the quality of romantic relationships with the rise of social media.
Keywords: Insecurity, jealousy, social media, romantic relationships
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvort að samfélagsmiðlar hafi áhrif á afbrýðisemi og óöryggi í rómantískum samböndum. Settur var upp spurningalisti til að mæla tengsl samfélagsmiðlanotkunar, afbrýðisemi og óöryggis. Settar voru fram fjórar tilgátur við þessa rannsókn. Niðurstöðurnar studdu tilgátu 1, þar sem konur sýndu almennt meiri afbrýðisemi og óöryggi. Tilgáta 2 var ekki studd þar sem tíðari notkun samfélagsmiðla leiddi ekki til þess að einstaklingar sýndu meiri afbrýðisemi og eða óöryggi. Tilgáta 3 var studd, þar sem niðurstöðurnar sýndu að einstaklingar sem höfðu slitið fyrra sambandi vegna einhvers sem átti sér stað á eða tengdist samfélagsmiðlum, voru líklegri til að vera afbrýðisamari. Tilgáta 4 var studd, þar sem tvíkynhneigðir einstaklingar sýndu almennt meiri afbrýðisemi og óöryggi en fólk með aðrar kynhneigðir. Þessi rannsókn gefur góða innsýn í áhrif samfélagsmiðla á rómantísk sambönd. Fleiri rannsóknir á þessu sviði gætu reynst mikilvægar til að finna leiðir til að bæta gæði samskipta í rómantískum samböndum þar sem samfélagsmiðlanotkun hefur færst í aukana.
Lykilorð: Óöryggi, afbrýðissemi, samfélagsmiðlar, rómantísk sambönd
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Social Media´s Impact on Jealousy and Insecurity in Romantic Relationships- BSc - 2024.pdf | 353,4 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |