is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Sálfræðideild / Department of Psychology >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47468

Titill: 
  • Titill er á ensku The relationship between trauma or mental health challenges and the personal motivation to study psychology in an Icelandic sample
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Psychology has steadily increased in popularity and is now the fourth most popular undergraduate program in the world. Many studies have shown that there is a significant difference between majors, with psychology students being more likely to have experienced adverse childhood experiences along with more trauma and poorer mental health. In this study, differences between Icelandic psychology-, engineering-, computer science-, business-, and law students were examined. The average age was 25.50, 61.8% identified as female, 37.9% as male, and 0.3% as non-binary. The results showed a significant difference, with psychology students being the most likely to have experienced the most trauma. However, computer science students were most likely to have a loved one who had experienced mental health challenges, law students were most likely to have a loved one who had experienced many traumas, and business students were the most likely to have had the most adverse childhood experiences. Therefore, there was only one hypothesis that passed hypothesis testing. The results also, showed that engineering students had by far the lowest scores compared to the other college majors and would be worth investigating further.
    Keywords: trauma, mental health, adverse childhood experiences, college major, psychology students

  • Sálfræði hefur aukist jafnt og þétt í vinsældum og er nú fjórða vinsælasta grunnnámið í heiminum. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að það sé marktækur munur á milli faggreina en sálfræðinemar eru líklegri til að hafa upplifað erfiða æsku og hafa orðið fyrir meiri áföllum samhliða verri geðheilsu. Í þessari rannsókn var munur á íslenskum sálfræði-, verkfræði-, tölvunarfræði-, viðskipta- og lögfræðinema skoðaður. Meðalaldurinn var 25,50, 61,8% þátttakenda skilgreindu sig sem kvenkyns, 37,9% sem karlkyns og 0,3% sem kynsegin. Niðurstöðurnar sýndu marktækan mun, þar sem sálfræðinemar voru líklegastir til að hafa orðið fyrir mestum áföllum. Hins vegar voru tölvunarfræðinemar líklegastir til að eiga ástvin sem hafði upplifað geðræn vandamál, lögfræðinemar voru líklegastir til þess að eiga ástvin sem hafði orðið fyrir áföllum, og viðskiptanemar voru líklegastir til að hafa orðið fyrir erfiðustu upplifunum í æsku. Því var aðeins ein tilgáta sem stóðst tilgátuprófun. Niðurstöðurnar sýndu einnig að verkfræðinemar voru með yfirburðar lág stig samanborið við hinar námsbrautirnar og væri þess virði að rannsaka þann mun nánar.
    Lykilorð: Áföll, geðheilsa, skaðleg upplifun í æsku, háskólanám, sálfræðinemar

Samþykkt: 
  • 3.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47468


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSc Thesis-Guðný Ása Halldórsdóttir.pdf192,79 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna