is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47501

Titill: 
  • EUROP flokkun íslenskra ungnauta
  • Titill er á ensku EUROP classification of Icelandic young cattle
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þrátt fyrir að kjötmatsmenn gangist undir námskeið og fræðslur og séu undir eftirliti Matvælastofnunar er kjötmat huglægt og því er alltaf möguleiki á skekkjum af mannlegum völdum. Búið er að koma af stað ýmiskonar tæknilegum þáttum sem koma eiga í veg fyrir huglægt mat kjötmatsmanna. Kjötframleiðsla hefur aukist til muna með innflutningi á erlendum holdagripum hérlendis og mikilvægt er að sambærilegir gripir séu flokkaðir á sem nákvæmastan hátt. Mismunandi stofnar hafa áhrif á gerð og fitu en meiri dreifni er á flokkun gerðar innan stofna en fitu. Fallþungi og vaxtarhraði eru áhrifaþættir sem hafa markvisst meiri áhrif á gerð og fitu í samanburði við vaxtarharða og aldur. Markmið verkefnisins er að skoða hvernig íslensk ungnaut flokkast í gerð og fitu samkvæmt EUROP-mati og að athuga hvaða áhrifaþættir hafa áhrif á flokkun þeirra. Aðeins eru notuð ungnaut frá árinu 2018 fram í nóvember 2023 og þeim er skipt í þrjá stofna. Stofn 1 eru alíslensk ungnaut, stofn 2 eru holdablendingar af Angus, Limousine og Galloway kynjum og stofn 3 eru blendingar af íslenskum og holdablendings gripum.

Samþykkt: 
  • 4.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47501


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_ritgerð_Holdanaut_Áslaug_Helga-1.pdf1,36 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna