en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Agricultural University of Iceland > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/47501

Title: 
  • Title is in Icelandic EUROP flokkun íslenskra ungnauta
  • EUROP classification of Icelandic young cattle
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þrátt fyrir að kjötmatsmenn gangist undir námskeið og fræðslur og séu undir eftirliti Matvælastofnunar er kjötmat huglægt og því er alltaf möguleiki á skekkjum af mannlegum völdum. Búið er að koma af stað ýmiskonar tæknilegum þáttum sem koma eiga í veg fyrir huglægt mat kjötmatsmanna. Kjötframleiðsla hefur aukist til muna með innflutningi á erlendum holdagripum hérlendis og mikilvægt er að sambærilegir gripir séu flokkaðir á sem nákvæmastan hátt. Mismunandi stofnar hafa áhrif á gerð og fitu en meiri dreifni er á flokkun gerðar innan stofna en fitu. Fallþungi og vaxtarhraði eru áhrifaþættir sem hafa markvisst meiri áhrif á gerð og fitu í samanburði við vaxtarharða og aldur. Markmið verkefnisins er að skoða hvernig íslensk ungnaut flokkast í gerð og fitu samkvæmt EUROP-mati og að athuga hvaða áhrifaþættir hafa áhrif á flokkun þeirra. Aðeins eru notuð ungnaut frá árinu 2018 fram í nóvember 2023 og þeim er skipt í þrjá stofna. Stofn 1 eru alíslensk ungnaut, stofn 2 eru holdablendingar af Angus, Limousine og Galloway kynjum og stofn 3 eru blendingar af íslenskum og holdablendings gripum.

Accepted: 
  • Jun 4, 2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47501


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BS_ritgerð_Holdanaut_Áslaug_Helga-1.pdf1,36 MBOpenComplete TextPDFView/Open