is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47505

Titill: 
  • Júgur- og spenaeiginleikar íslenskra kúa á öðru mjaltaskeiði
  • Titill er á ensku Udder and teat type traits of 2nd lactating Icelandic Cattle
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Júgur- og spenaeiginleikar eru dæmdir á línulegum dómskala og hljóta þær einkunn fyrir eiginleikana á skalanum 1-9. Júgureiginleikarnir eru júgurjafnvægi, júgurfesta, júgurband og júgurdýpt og spenaeiginleikar eru spenagerð, spenalengd, spenaþykkt, spenastaða og spenaoddur. Í kynbótaeinkunn íslenskra kúa vega júgur og spenar samtals 20% af heildarkynbótaeinkunn, en júgurjafnvægi, spenagerð og spenaoddur eru ekki hluti af heildareinkunn. Meginarkmið þessa verkefnis var að bera saman júgur- og spenagerð á fyrsta og öðru mjaltaskeiði, meta arfgengi eiginleika á öðru mjaltaskeiði og meta erfðafylgni júgur- og spenaeiginleika milli mjaltaskeiða. Upplýsingar úr kúadómum voru fengnar frá Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins, alls 124.707 kýr með dóm á fyrsta og öðru mjaltaskeiði. Erfðastuðlar voru metnir fyrir júgur- og spenaeiginleika með forritapakkanum DMU og greining var gerð með línulegu tvíbreytueinstaklingslíkani og (sam)dreifnistuðlar metnir með AI-REML.
    Júgur- og spenabygging var að jafnaði slakari hjá kúm á öðru mjaltaskeiði. Erfðafylgni júgur- og spenaeiginleika milli fyrsta og annars mjaltaskeiðs var á bilinu 0,75-0,92 , hæst fyrir spenalengd og lægst fyrir spenaodd. Staðalskekkja erfðafylgni var metin á bilinu 0,03-0,08, þar sem staðalskekkja var há fyrir suma eiginleika er hægt að draga þá ályktun að þörf sé á stærra gagnasafni svo hægt sé að fullyrða lága erfðafylgni milli allra eiginleika. Tvímælingagildi eiginleika var á bilinu 0,19-0,43, lægst fyrir spenaodd og hæst fyrir spenalengd. Lágt tvímælingagildi bendir til að meta þurfi eiginleikana á báðum mjaltaskeiðum eða að um sé í raun að ræða sitthvorn eiginleikann og ætti að gera upp í tvíbreytulíkani frekar en tvímælingalíkani. Arfgengi eiginleikana á öðru mjaltaskeiði var metið á bilinu 0,14-0,42, lægst fyrir spenaodd og hæst fyrir spenalengd. Arfgengi eiginleikanna á fyrsta mjaltaskeiði var metið á bilinu 0,11-0,37, lægst fyrir spenaodd og júgurjafnvægi og hæst fyrir spenalengd.

Samþykkt: 
  • 4.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47505


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Júgur- og Spenaeiginleikar íslenskra kúa á öðru mjaltaskeiði_BS-ritgerð_Marta.pdf946,2 kBOpinnPDFSkoða/Opna