is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47508

Titill: 
  • Geðslag áa á Hesti og tengsl við afurðatengda eiginleika
  • Titill er á ensku Temperament of sheep from Hestur and relationships with product-related traits
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið verkefnisins var að hanna einkunnaskala sem notast má við skapgerðarprófun fyrir íslenska fjárstofninn. Ásamt því að kanna og meta geðslag áa við vigtun voru áhrif geðslags á afurðatengda eiginleika könnuð. Skoðuð voru áhrif geðslags á frjósemi (lömb/ár), fallþunga mæðraáhrifa (BLUP), lífþunga (kg) og holdastig. Geðslag er almennt ekki metið fyrir íslenskt sauðfé og eru því fáar rannsóknir sem skoða geðslag íslensku sauðkindarinnar, erlendar rannsóknir hafa þó sýnt að taugaveiklaðir gripir hafi almennt minni vaxtarhraða og/eða frjósemi.
    Hannaðir voru tveir skapgerðarskalar. Fyrri skalinn var gerður til að meta það hvort ærnar færu sjálfar inn og út úr vigt, þar var gefin einkunn frá 1 upp í 4. Seinni skalinn var tileinkaður hegðun inni í vigtinni og var einkunn gefin frá 1 upp í 6. Rannsókn var framkvæmd á
    Tilraunabúi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hesti, 434 ær á aldrinum 2-8 vetra voru metnar. Athuganir fóru fram við þrjár vigtanir, þann 4. desember 2023, 10. janúar og 7. febrúar 2024. Teknar voru niður skráningar fyrir hverja á, einstaklingsnúmer, hornalag og einkunn gefin fyrir sitthvorn skalann úr frá hegðun.
    Dreifing á skala 1 var nánast enginn, í langflestum tilfellum fóru ærnar sjálfar inn í vigt og út úr vigt. Dreifing á skala 2 var aðeins meiri, hægt er að sjá að fleiri ær fá einkunnir 1 og 2 í seinni tveimur athugunum miðað við þá fyrstu. Niðurstöður sýndu fram á að tengsl geðslags við afurðartengda eiginleika hafi að mestu verið ómarktæk. Munur virðist vera á milli aldurshópa þar sem tveggja vetra ær sýndu örlítið taugaveiklaðri hegðun heldur en eldri ær. Þá virtist einnig vera munur á milli hyrndra og kollóttra áa. Þar sem kollóttar ær voru að meðaltali að sýna rólegri hegðun heldur en hyrndar ær. Marktæk jákvæð fylgni (0,29) var á milli holdastigs og hegðunar á skala 2, þar sem ær í miklum holdum sýndu frekar taugaveiklaðri hegðun inni í vigt heldur en ær í litlum holdum. Niðurstöður þessarar rannsóknar voru ólíkar erlendum/sambærilegum rannsóknum sem hafa verið gerðar á erlendum fjárkynjum.
    Út frá niðurstöðum má álykta að geðslag hafi lítil áhrif á afurðatengda eiginleika áa, en þar sem framkvæmdin var einungis innan einnar hjarðar er ekki hægt að útiloka aðrar niðurstöður innan annarra hjarða.

Samþykkt: 
  • 4.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47508


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð 2024_Ósk Reynisdóttir.pdf1,15 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna