is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47509

Titill: 
  • Áhrif yfirsáningar í gróin tún á uppskeru og hlutfall sáðgresis
  • Titill er á ensku Effects of overseeding into grown fields on harvest yield and establishment percentage
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Yfirsáning (e. overseeding) getur verið einföld og ódýr leið til þess að auka magn og gæði uppskeru án þess að fara alla leið í endurræktun. Yfirsáning snýst um það að sá fræi ofan á gróinn svörð, ólíkt ísáningu þar sem svörðurinn er opnaður og fræ lagt ofan í hann. Yfirsáning er ekki algeng hér á landi en tíðkast víða erlendis. Mismunandi er hvort tilraunir með yfirsáningu beri árangur í formi uppskeruauka, en reynsla bænda er þó að yfirsáning geti aukið uppskeru takist vel til. Þessi tilraun skoðaði yfirsáningu í tvær spildur á Hvanneyri og Mið-Fossum. Ekki fannst marktækur munur á uppskeru né hlutfalli sáðgresis á milli reita með eða án yfirsáningu á fyrsta ári. Á meðan yfirsáning skilar ekki uppskeruauka er hún ekki arðsöm, en hún þyrfti að skila aukningu sem nemur um 520 kg þe. til þess að standa undir sér. Það hefur sýnt sig að yfirsáning ber oft ekki mælanlegan árangur fyrr en á öðru ári eftir sáningu og því þarf að endurtaka uppskerumælingar á þessum spildum til þess að sjá mögulegan árangur.

Samþykkt: 
  • 4.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47509


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-2024-Pétur Ómarsson.pdf1,08 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna