is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47510

Titill: 
  • Tannhirða og tannheilbrigði íslenska hestsins
  • Titill er á ensku Dental care and dental health of the Icelandic horse
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að skoða verklag dýralækna við munn- og tannskoðun hjá hrossum og hvernig íslenskir umráðaaðilar hesta hátta skoðun á munni og tönnum sinna hesta. Hvaða hópar hrossa væru skoðaðir, hver framkvæmir skoðun ásamt viðeigandi verkferlum. Sendur var út rafrænn spurningalisti þar sem íslenskir hestamenn voru beðnir um að svara hinum ýmsu spurningum. Svör bárust frá 209 aðilum við spurningalistanum sem lagður var fram. Einnig var tekið viðtal við Sonju Líndal Þórisdóttir dýralækni og borið saman við svör við síðustu spurningu spurningalistans, þar sem spurt var um verklag dýralækna þegar dýralæknar sjá um skoðun munns og tanna hjá svarendum.
    70,2% þeirra sem eiga 1-5 hesta láta dýralækni alltaf skoða munn og tennur sinna hesta en 33,3% þeir sem eiga 30 eða fleiri hross láta dýralækni skoða öll sín hross. Þeir eigendur sem eiga 30 eða fleiri hross voru líklegastir til að skoða munn og tennur allra útigangshrossa. Í viðtali sem tekið var við Sonju Líndal bendir hún á það að tannheilbrigði íslenska hestsins sé gott en það mætti bæta skoðun ýmissa hópa, svo sem útigangshrossa. En þar á meðal bendir hún en fremur á að hestamenn þurfa að vera duglegir við að vera gagnrýnir á sjálfa sig þegar kemur að skoðun vandamála sem kunna að koma upp hjá reiðhestum en munn og tönnum er kennt um.
    Endað er á að spyrja stórra spurninga í ritgerðinni, svo sem hvort að þurfi að raspa munn og tennur allra hópa hesta til að mynda útigangshrossa og hvort að hestamenn eru að kenna munn- og tannvandamálum um þau vandamál sem kunna að koma upp í þjálfun hesta.
    Lykilorð: Íslenski hesturinn, tannumhirða, líffræði tanna, verklag dýralækna, reiðmennska.

Samþykkt: 
  • 4.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47510


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Tannhirða og tannheilbrigði íslenska hestsins.pdf1,29 MBOpinnPDFSkoða/Opna