is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47560

Titill: 
  • Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr
  • Titill er á ensku Cow-legumes; yield and nutritional value in annual legumes for dairy cows
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta.
    Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr.
    Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar.

Styrktaraðili: 
  • Þróunarsjóður nautgriparæktarinnar
Samþykkt: 
  • 6.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47560


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr.pdf3,35 MBOpinnPDFSkoða/Opna