Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47598
Undanfarin ár hefur stafræn umbreyting í bankastarfsemi verið áberandi vegna fjölmargra áskorana og tækifæra sem fyrirtæki standa frammi fyrir til þess að haldast samkeppnishæf í síbreytilegu tækniumhverfi nútímans. Stafræn umbreyting innan fyrirtækja getur aftur á móti haft veruleg áhrif á starfsfólk fyrirtækja og viðskiptavini þess.
Markmið þessara rannsóknar var að skoða hvernig stafræn umbreyting hefur aukið skilvirkni bankaþjónustu og haft áhrif á starfsemi Íslandsbanka. Sérstaklega verður skoðað hvernig Fróði, spjallmenni bankans, hefur nýst starfsfólki og hvernig það hefur breytt þjónustu upplifun viðskiptavina hans. Í rannsókninni var notuð eigindleg rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við 11 starfsmenn Íslandsbanka. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á tiltekið hagnýtt gildi (e. business value) Fróða í stafrænni umbreytingu Íslandsbanka. Þær draga einnig fram helstu áskoranir og tækifæri í því samhengi. Á meðal helstu áskorana er aðlögun starfsmanna að nýjum verkferlum sem hlutust af innleiðingu stafrænna lausna. Á meðal helstu tækifæra er frekari notkun gervigreindar í fleiri deildum innan bankans. Einnig felast tækifæri í stafrænni umbreytingu í bestun ferla sem skilar sér í aukinni skilvirkni í þjónustu bankastarfsemis.
Heildarniðurstöður rannsóknarinnar sýna að spjallmenni geta verið verðmæt tól í bankastarfsemi. Fróði hefur til að mynda leitt til bættrar upplýsingaöflunar starfsmanna Íslandsbanka og gert þjónustu til viðskiptavina skilvirkari. Í ritgerðinni eru einnig tillögur að frekari rannsóknum sem snúa að stafrænni umbreytingu í bankaþjónustu.
Efnisorð: stafræn umbreyting, spjallmenni, verðmætasköpun, þjónustustjórnun, bankaþjónusta
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sunneva og Thelma. B.Sc. ritgerð 15. maí.pdf | 1,06 MB | Lokaður til...31.12.2029 | Heildartexti | ||
elinl_240515-125448-1f4.pdf | 416,55 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |