is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47677

Titill: 
  • Hvað fær íslenskar skipulagsheildir til að stofna og reka verkefnastofu?
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn beinir sjónum sínum að verkefnastofum á Íslandi með það að markmiði að gera grein fyrir stofnun og hlutverki þeirra í rekstri innan íslenskra skipulagsheilda. Íslenskar verkefnastofur eiga sögu allt frá árinu 1997 og virtust vera sívaxandi eining innan skipulagsheilda þar til bankahrunið varð árið 2008. Í ljósi þess, hefur lítið verið ritað um þær á síðustu árum. Leitast höfundar við að fá upp á yfirborðið núverandi stöðu og reynslu verkefnastofa á Íslandi. Ásamt því að komast að hlutverki, áskorunum, ávinningum og mælikvörðum þeirra. Gögnum var aflað með viðtölum við stjórnendur verkefnastofa ásamt greiningu á fyrirliggjandi rannsóknum og fræðiefni.
    Helstu niðurstöður benda til þess að verkefnastofur á Íslandi gegna mismunandi hlutverkum en eru að takast á við fjölmargar en keimlíkar áskoranir. Tækifæri eru til úrbóta, einna helst á mælikvörðum ávinnings sem skipulagsheildir ættu að skilgreina á verkefnastofunum sjálfum. Verkefnastofur sinna hlutverki í þróun og framförum í skipulagsheildum sínum og mikilvægi þeirra getur aukast í framtíðinni. Þannig efla þær þekkingu og styðja við áframhaldandi þróun og fagmennsku í verkefnastjórnun.

Samþykkt: 
  • 12.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47677


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MeistaraverkiðFinal.pdf648,82 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna