is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47835

Titill: 
  • „Til hvers, þú veist að vera með þetta vesen?“ : viðhorf kennara gagnvart stöðu hinsegin ungmenna í grunnskólum og hugmyndir að úrbótum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Skýrsla Samtakanna '78 um stöðu og líðan hinsegin ungmenna bendir til þess að hinsegin ungmenni standi höllum fæti í skólakerfinu og að rými sé til úrbóta. Fyrri rannsóknir benda til þess að gagnkynhneigð viðmið liti skólakerfið. Borið hefur á auknum fordómum í samfélaginu. Þessi rannsókn leitast við að svara hvort sýn og upplifun kennara á líðan hinsegin ungmenna sé í samræmi við niðurstöður Samtakanna '78, hvað skólar geri til að styðja við hinsegin nemendur og hverjar birtingarmyndir fordóma séu innan skóla. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru einstaklingsviðtöl við 10 grunnskólakennara í unglingadeildum á suðvesturhorni landsins. Notast var við þemagreiningu við gagnavinnslu. Fjögur meginþemu komu í ljós; (1) viðhorf og sýn kennara, (2) stuðningur, (3) þekking og fræðsla, (4) fordómar. Niðurstöður benda til þess að sýn kennara sé ekki að öllu leyti í samræmi við raunverulega líðan hinsegin ungmenna. Kennarar upplifa vanmátt og telja sig skorta nægilega þekkingu til að mæta þörfum hinsegin ungmenna á fullnægjandi hátt. Þörf er á aukinni fræðslu sem veitir skólastarfsfólki hagnýt verkfæri til að gera þeim kleift að styðja við hinsegin ungmenni. Drengir eru undir sterkum áhrifum gagnkynhneigðarhyggju og birtingarmyndir fordóma í grunnskólum eru í formi öráreitni og hinseginhæðandi athugasemda unglingsdrengja. Merki um bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks eru skýr innan veggja skóla. Mikilvægt er að huga sérstaklega að þörfum trans nemenda. Þörf er á aukinni þekkingu um hinsegin málefni innan skólasamfélagsins. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að skýr ávinningur hlytist af að leggja áherslu á hinsegin menntunarfræði í kennaranámi og endurmenntun kennara.

  • Útdráttur er á ensku

    Samtökin '78’s school climate survey shows that queer youths have a
    disadvantage in the school environment. Prior research indicates that
    heteronormativity is a defining factor in the school environment. There
    has been a significant regression regarding queer acceptance in the
    general public. The current study aims to shed light on whether
    teachers’ perspective on queer youths’ social status and wellbeing
    within the school is in accordance with Samtökin '78’s survey, how
    schools are currently supporting queer youth and how prejudice
    presents itself within the schools. This study is conducted by using a
    qualitative research design. Participants were 10 teachers that worked
    with 12–16 year olds in the south-west part of Iceland. Four main
    themes were found: (1) teacher attitude and perspective, (2) support,
    (3) knowledge and education, (4) prejudice. Results indicate that
    teacher’s perspective on queer youths’social status and wellbeing is not
    in accordance with Samtökin '78’s survey. Teacher’s report feeling
    powerless and lacking proper knowledge to support queer students. It
    is important to provide teachers with the proper tools and information
    to be able to fully support queer youths. Teenage boys are heavily
    affected by heteronormativity which presents itself as homophobia.
    Prejudice within schools is mainly in the form of microaggressions and
    homophobic discourse or slurs. There are clear signs of regression
    regarding queer acceptance in Icelandic schools. Extreme care needs to
    be taken in regard to supporting trans youths. Schools need to take
    action to improve staff’s knowledge on queer issues. Results indicate
    that there is room for improvement regarding teachers’ education and
    professional development on queer youths’ challenges and education.

Samþykkt: 
  • 18.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47835


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MEd verkefni EÞH og SEH.pdf906,05 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna