Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47850
Ritgerð þessi er 12 eininga lokaverkefni til B.A. prófs í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefni ritgerðarinnar varðar eignarréttindi og takmarkanir þeirra vegna háttsemi nágranna í fjöleignarhúsum. Í 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir að eignarrétturinn sé friðhelgur. Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er heimilt að takmarka eignarréttinn. Skilyrðin eru að fyrir hendi sé almenningsþörf, skýr lagaheimild og að fullt verð fáist fyrir eignina.
Fasteignakaupalögin nr. 40/2002 hafa að geyma ákvæði um skyldu seljanda til að upplýsa kaupanda um hvað eina sem getur haft áhrif á gerð kaupsamnings, þar á meðal upplýsingar er varða ónæði vegna háttsemi nágranna en slík háttsemi getur haft þær afleiðingar að verðmæti fasteignar rýrnar.
Í 55. gr. fjöleignarhúsalaganna nr. 26/1994 er að kveðið á um heimild til takmörkunnar á eignarréttindum, hafi eigandi gerst brotlegur á grófan eða ítrekaðan hátt við aðra íbúa eða húsfélag fjöleignarhúss.
This thesis is a final project for a B.A. degree at the Faculty of Law at the University of Akureyri. The subject of the thesis concerns property rights and limitations on property rights due to the behaviour of neighbours in a multi-owner building. The first paragraph of Article 72 of the Icelandic Constitution No. 33/1944 states that the right of private ownership is inviolable. If certain conditions are met the right to private ownership may be limited. The conditions to limit the right of private ownership are that it is necessary due to public interest, that such a measure shall be provided for by law and that full compensation is paid. Act No. 40/2002 on Purchase of Real Estate includes provisions that mandate the obligation of the seller to inform the buyer of anything that can affect the conclusion of a purchase agreement, including information regarding disturbance due to the behaviour of neighbours but such a behaviour may reduce the value of the property. Article 55 of the Multi-Owner Buildings Act No. 26/1994 permits the limitation of property rights if an owner, or other inhabitant of the building or party entitled to use it, is found guilty of gross or repeated violation of his obligations towards the residents association or one or more of the owners
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA-ritgerð, Ónæði vegna háttsemi nágranna.pdf | 829,09 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |