Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47861
Bakgrunnur: Álag og streita í starfumhverfi er meðal þeirra áskorana sem ungir hjúkrunarfræðingar takast á við á vinnustað. Meðal annars vegna mönnunarvanda, skorts á stuðningi, erfiðra samskipta og ójafnvægis milli vinnu og einkalífs. Slíkar áskoranir valda því að ungir hjúkrunarfræðingar geta upplifað kulnun, óöryggi og slæma heilsu, en þeir telja að lykillinn af starfsánægju sé umhyggja, þjónandi forysta, valdefling í starfi og stuðningur frá stjórnendum.
Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á þær áskoranir sem ungir hjúkrunarfræðingar mæta í starfi sínu og þær væntingar sem þeir hafa til hjúkrunarstjórnenda.
Aðferð: Til að svara rannsóknarspurningunni var valin samþætt heimildasamantekt. Gerð var kerfisbundin leit í tveimur gagnasöfnum, Ebscohost (Chinal þar með) og Scopus. Ásamt því voru heimildalistar skoðaðir og leitað var í greinasafni Tímarits íslenskra hjúkrunarfræðinga. Leitarorð voru meðal annars nurse, nursing management, generation y, experience, qualitative og quantitative, þá var einnig notast við samsvarandi leitarorð á íslensku. Urðu greinarnar að vera ritrýndar fræðigreinar, á ensku eða íslensku og birtar á tímabilinu 2009-2024. Þátttakendurnir í rannsóknunum urðu að vera hjúkrunarfræðingar af Y-kynslóðinni. Leitin var sett upp í PRISMA og voru átta greinar sem mættu uppfylltu skilyrðunum.
Niðurstöður: Niðurstöður sýna að álag í starfi, reynsla af samskiptum, ofbeldi á vinnustað og það að vera ungur í starfi, eru megináskoranir sem ungir hjúkrunarfræðingar standa frammi fyrir í starfi sínu. Þeir sýna mikla ástríðu fyrir starfinu og vilja standa sig vel. Þeir vænta þess að fá endurgjöf og stuðning frá hjúkrunarstjórnendum þar sem það eflir þá í starfi og eykur starfsánægju þeirra. Sveigjanleiki í starfi er þeim mikilvægur og auðveldar þeim að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Ályktanir: Mikilvægt er að mæta þörfum og væntingum ungra hjúkrunarfræðinga til þess að auka starfsánægju þeirra og seiglu. Það er því vænlegt til árangurs að hjúkrunarstjórnendur átti sig á áskorunum og væntingum þessarar kynslóðar.
Background: High workload and stress in the work environment are among the challenges faced by young nurses in the workplace. These challenges include staffing problems, lack of support, difficult communication and imbalance between work and private life. Such challenges can cause young nurses to experience burnout, insecurity and poor health. They believe that the key to job satisfaction is caring, servant leadership, empowerment in the workplace and support from management.
Aim: The aim of this study was to shed light on the challenges young nurses face in their work and the expectations they have for nurse managers.
Method: To answer the research question, an integrated literature review was selected. A systematic search was conducted in two databases, Ebscohost (Chinal Inc.) and Scopus. Along with that, reference lists were examined and searched in the journal Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga. Search terms were nurse, nursing management, generation y, experience, qualitative and quantitative, then the corresponding search terms were also used in Icelandic. The articles had to be peer-reviewed, in English or Icelandic and published between 2009-2024. The participants in the research had to be nursing professionals of generation Y. The search was set up in PRISMA and eight articles met the criteria.
Results: The results show that workload, experience of communication, violence in the workplace and being young in the work are the main challenges that young nurses face in their work. They show great passion for their work and want to do well. They expect feedback and support from nurse managers as it strengthens them in their work and increases their job satisfaction. Flexibility in their work is important to them and makes it easier to balance their work and personal life.
Conclusions: It is important to meet the needs and expectations of young nurses in order to increase their job satisfaction and resilience. It is therefore important for success that nurse managers realize the challenges and expectations of this generation.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Áskoranir í starfsumhverfi ungra hjúkrunarfræðinga og væntingar þeirra til hjúkrunarstjórnenda.pdf | 620,19 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |