Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47862
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar er að fá betri innsýn í hver hlutverk og verkefni sérfræðinga í hjúkrun eru í íslensku heilbrigðiskerfi og kanna hvort það séu þættir sem hafa áhrif á innleiðingu hlutverka og verkefna sérfræðinga í hjúkrun á Íslandi.
Aðferð: Aðferðin er megindleg lýsandi þversniðsrannsókn meðal sérfræðinga í hjúkrun sem starfa á mismunandi sviðum heilbrigðisþjónustu. Sendur var póstur til allra sérfræðinga í hjúkrun sem skráðir eru í deild sérfræðinga í hjúkrun og þeim gefinn kostur á þátttöku, sem um helmingur þeirra gerði.
Niðurstöður: Niðurstöður sýna að hlutverk og verkefni sérfræðinga í hjúkrun eru mismunandi eftir starfs- og sérsviðum. Að einhverju leiti hefur átt sér stað innleiðing á hlutverkum og verkefnum sérfræðinga í hjúkrun en í ljós kom að vöntun er á á lögum og reglugerðum um ýmissa þætti sérfræðistarfsins eins og t.d. er vöntun á skýrara valdsviði stéttarinnar, hlutverk og verkefni þurfa að vera betur afmörkuð fyrir hvert sérsvið fyrir sig, starfið þarf að vera sýnilegra og stuðningur yfirmanna, stjórnenda og ráðuneytis þarf að vera til staðar til að betri innleiðing á störfum sérfæðinga í hjúkrun geti átt sér stað sem og viðurkenning starfsins.
Ályktanir: Álykta má, miða við niðurstöður, að margt megi betur fara í íslensku heilbrigðiskerfi þegar kemur að hlutverkum og verkefnum sérfræðingum í hjúkrun. Nýting þeirra gæti verið töluvert betri miða við niðurstöður þessara rannsókna en meirihluti þátttakenda telja að ekki sé verið að nýta þekkingu sína til fulls. Einnig er áhugavert að meirihluti þeirra sem þátt tóku í þessari rannsókn vinna ekki í fullu starfi sem sérfræðingar í hjúkrun.
Aim: The purpose of the study is to get better insight into what the roles and tasks of clinical nurse specialists (CNSs) are in the Icelandic health care system and to investigate whether there are factors that affect the implementation of the roles and tasks of CNSs in Iceland. Method: The method is a quantitative descriptive cross-sectional study among CNSs working in different areas of the Icelandic health care system. The chairman of the CNS chapter of the Icelandic nursing Association was contacted and asked for permission to send an e-mail to its members, but about half of the members answered the survey. Results: The results show that the roles and tasks of nursing specialists differ depending on the profession and specialty. To some extent, the roles and tasks of CNSs have been discussed and the laws and regulations have been clarified on various aspects of the role of the CNS, such as there is a lack of the professional authority, roles and tasks need to be better defined. Their work needs to be more visible and there is a lack of presentation of the possibilities and important roles and tasks of nursing specialists. The support of management and the ministry of health must be present so a better implementation can take place as well as recognition of the work of nurse specialists.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Sérfæðingar í hjúkrun-Skemman skil.pdf | 663,1 kB | Opinn | Skoða/Opna |