Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47863
Bakgrunnur: Á heimsvísu er árleg tíðni hjartastopps utan sjúkrahúss 30-97 tilfelli á hverja 100.000 íbúa. Vegna meiri þekkingar á endurlífgun og aukins aðgengis að sjálfvirkum hjartastuðtækjum hefur fjöldi þeirra sem lifa af hjartastopp aukist. Eftirlifendur hjartastopps eiga á hættu að glíma við sálrænar afleiðingar eftir áfallið svo sem þunglyndi, kvíða og áfallastreituröskun. Rannsóknir hafa sýnt að markviss eftirfylgd og stuðningur við einstaklinga sem eru að jafna sig eftir hjartastopp auka lífslíkur og lífsgæði eftir útskrift af sjúkrahúsi.
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að lýsa upplifun eftirlifenda hjartastopps og þörfum þeirra fyrir fræðslu, eftirfylgd og faglegan stuðning, í þeim tilgangi að bæta þjónustu við þessa einstaklinga eftir útskrift af sjúkrahúsi.
Aðferð: Í þessari eigindlegu rannsókn var gögnum safnað með hálfstöðluðum einstaklingsviðtölum á árunum 2022-2023. Þátttakendur voru sjö karlar og fimm konur á aldrinum 28-65 ára (M = 52 ár), sem höfðu lifað af hjartastopp utan sjúkrahúss á síðastliðnum 6-28 mánuðum. Tekið var eitt viðtal við hvern einstakling. Gögnin voru greind með kerfisbundinni textaþéttingu Malteruds.
Niðurstöður: Meginniðurstöður rannsóknarinnar voru að hjartastopp hefur flóknar og margbreytilegar líkamlegar og sálrænar afleiðingar fyrir eftirlifendur. Greind voru fjögur meginþemu. Þemað Upplifun af hjartastoppi lýsir fyrirboðaeinkennum og upplifun af endurlífguninni. Þemað Færniskerðingar lýsir áhrifum hjartastoppsins á líkamlega og hugræna líðan og getu. Í þemanu Sálrænar afleiðingar lýsa þátttakendur „tilfinningarússíbana“ sem þeir upplifðu eftir hjartastoppið og breyttri sýn á lífið sem felur í sér breytta forgangsröðun, þakklæti og æðruleysi. Síðasta þemað, Þörf fyrir fræðslu og stuðning, lýsir óuppfylltri þörf fyrir eftirfylgd eftir útskrift af sjúkrahúsi.
Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að eftirlifendur hjartastopps eigi við margvíslegar líkamlegar og sálrænar áskoranir að stríða og upplifi hafsjó af tilfinningum. Þörfum þeirra fyrir eftirfylgd eftir útskrift af sjúkrahúsi er ekki fullnægt og nauðsynlegt er að byggja upp faglega eftirfylgd og stuðning fyrir eftirlifendur og aðstandendur þeirra.
Introduction: Globally, the annual incidence of out-of-hospital cardiac arrest is 30-97 cases per 100.000 inhabitants. Due to improved knowledge in cardiopulmonary resuscitation (CPR) and increased access to automated defibrillators, the number of cardiac arrest survivors has increased. The survivors are at risk of psychological challenges such as depression, anxiety, and post-traumatic stress disorder. Research indicates that structured followup and support for individuals recovering from cardiac arrest increases life expectancy and quality of life post-hospital discharge. Purpose: The study aimed to describe the experience of cardiac arrest survivors, their needs for education, follow-up, and professional support in order to improve post-hospital services for these individuals. Methods: In this qualitative study data was collected through semistructured interviews in 2022-2023. Participants were seven men and five women, aged 28-65 years (M=52 years), who had survived out-of-hospital cardiac arrest. One interview was conducted with each participant. Data was analyzed using Malterud’s systematic text condensation. iv Results: The main findings were that cardiac arrest has complex and varied physical and psychological consequences for survivors. Four main themes were identified. The theme Cardiac arrest experience describes warning signs and experience from the CPR. The theme Impairment describes the impact of cardiac arrest on physical and mental well-being and ability. In the theme Psychological consequences, participants describe the "emotional rollercoaster" they experienced after the cardiac arrest and a changed perspective on life that includes a change in priorities, gratitude, and serenity. The final theme Need for education and support describes the unmet need for follow-up after hospital discharge. Conclusions: The study´s results indicate that cardiac arrest survivors face a variety of physical and psychological challenges and experience a sea of emotions. Their needs for follow-up after hospital discharge are not met, and there is a need to establish a professional follow-up and support for survivors and their families.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistararitgerð2024HjartastoppETGloka.pdf | 2.8 MB | Lokaður til...15.06.2026 |