Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/47922
Þessi ritgerð fjallar um netverslunina Boozt og neytendahegðun Íslendinga hvað þá verslun snertir. Á síðustu árum hafa vinsældir netverslana farið vaxandi. Það er t.d. vegna tilkomu snjallsíma og aukinnar þarfar neytenda til að spara sér tíma. Margar mismunandi netverslanir hafa sprottið upp hér á landi á síðustu árum og er Boozt dæmi um það. Boozt er netverslun sem selur föt, snyrtivörur, skó o.fl. Netverslunin kom á íslenskan markað árið 2021 en hún er einnig starfandi í fjölda annarra landa. Ýmiss fræði eru skoðuð og skrif frá hinum ýmsu fræðimönnum varðandi neytendur, neytendahegðun og áhrifaþætti hennar. Markmið þessarar rannsóknar var að komast að því hvort neytendahegðun Íslendinga hefði breyst með tilkomu Boozt á Íslandi. Hvaða hópar kaupa helst föt af Boozt og hvers vegna fólk kaupir föt af Boozt eða hvers vegna ekki? Megindleg rannsókn var framkvæmd í formi spurningakönnunar til þess að uppfylla markmið rannsóknarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að líkur séu á því að neytendahegðun Íslendinga hafi breyst þegar Boozt kom á íslenskan markað. Verslunin var fljót að skapa sér sess hér á landi og rannsóknin bendir til þess að markaðshlutdeild verslunarinnar muni líklega koma til með að aukast á næstu árum eða að minnsta kosti standa í stað. Bakgrunnsbreytur eins og kyn, tekjur, fjöldi heimilismanna og aldur hafa áhrif á það hvort fólk kaupi föt á Boozt og/eða hversu oft. Einnig voru niðurstöðurnar þær að verð, afhendingar- og kaupferli væru helstu ástæður þess að fólk keypti föt á Boozt en helstu ástæður þess að fólk keypti ekki föt á Boozt tengjast óvissu og áhugaleysi.
This essay examines the online store Boozt and the consumer behaviour of Icelanders with respect to that store. The popularity of e-commerce has increased significantly in the last few years, partly due to the emergence of smartphones and consumers’ increased need to save time. A variety of online stores have emerged in Iceland over the last few years, with Boozt being a prime example. Boozt is an online store that sells clothes, shoes, cosmetics and more, launched in Iceland in 2021 and operates in several other countries. The study explores theories and academic writings on consumers, consumer behaviour and influencing factors. The objective of this study is to figure out if the consumer behaviour of Icelanders changed when Boozt began operations in Iceland, identify the demographics of Boozt shoppers and their reasons for shopping there, and understand why others don’t shop at Boozt. A quantitative study was conducted in the form of a questionnaire to fulfil the study’s objectives. The results of this study show that the consumer behaviour of Icelanders might have changed after Boozt’s market entry. The store quickly captured market share in Iceland and the research indicates that Boozt’s market share might grow in the coming years or at least remain steady. Background variables like gender, income, number of household members and age have influence on whether people buy clothing from Boozt and/or how often they do. The results also indicate that price, delivery, and buying process are the main reasons why people shop at Boozt. Results also suggest that the reasons why people don’t buy clothes from Boozt is connected to uncertainty and lack of interest.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Bsc-ritgerð_helgagudrunalbertsdottir.pdf | 2,51 MB | Open | Complete Text | View/Open |