Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47952
Húsavík er bæjarfélag sem hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár þar sem verslun, þjónusta og atvinnulíf er í stöðugri framþróun. Góð almenn þjónusta er í bæjarfélaginu og mikil náttúrufegurð ásamt því að tækifæri til tómstundaiðkunar eru mörg. Mismunandi umfjöllun varðandi uppbyggingu matvöruverslunar hefur heyrst í almennu umtali innan bæjarfélagsins og hafa skapast mjög líflegar umræður og mismunandi skoðanir hjá hinum ýmsu aðilum innan samfélagsins. En hver eru viðhorf íbúa varðandi uppbyggingu matvöruverslunar og hvaða áhrif hefur uppbygging hennar á staðarvitund og þróun lifandi miðbæjar í smáu byggðarlagi eins og Húsavík? Í þessari ritgerð voru tekin viðtöl með opnum spurningum við fimm einstaklinga á ýmsum aldri, varðandi kosti þess og galla að búa innan bæjarfélagsins og hvaða samgöngumáta íbúar nýta sér við verslun og þjónustu ásamt því að kanna viðhorf þeirra til uppbyggingar á nýrri matvöruverslun innan Húsavíkur. Einnig verður kannað hvaða áhrif sú uppbygging hefðu á búsetuánægju og miðbæjarlíf bæjarfélagsins. Mikill meirihluti íbúa á Húsavík er mjög ánægður með búsetu innan bæjarfélagsins og telur alla almenna þjónustu góða. Íbúarnir hafa góða umhverfisvitund og telja að samspil umhverfis og skipulags stuðli að bættri verslun og þjónustu í samfélaginu með það að leiðarljósi að auka kosti þess að búa í smáu bæjarfélagi úti á landi með bættu mannlífi, með tilliti til matvöruverslunar og iðandi lífs í miðbæ Húsavíkur.
Lykilorð: búsetugæði, umhverfi, skipulag, miðbæjarlíf, matvöruverslun.
Húsavík is a rural town currently experiencing significant development, with ongoing progress in trade, services, and the economy. Situated in close proximity to excellent public services, stunning natural landscapes and abundant recreational opportunities, the municipality has become a focal point of discussion regarding the establishment of a new grocery store. These discussions among the town inhabitants have sparked lively debates and varied opinions among community members. The current study revolves around the residents' sentiments concerning the potential construction of a grocery store and the impact such a development would have on local awareness and the vibrancy of downtown Húsavík. Five individuals in different age groups participated in interviews featuring open-ended questions. These interviews explored the advantages and drawbacks of residing in the municipality, residents' preferred modes of transportation for shopping and services, and their stances on the proposed establishment of a new grocery store in Húsavík. Furthermore, the survey aimed to assess the impact of this establishment on residents' overall satisfaction with living conditions and the vitality of the town center. A majority of Húsavík residents express contentment with their life in the municipality, praising the quality of public services. They exhibit a strong environmental consciousness and advocate for synergy between environmental considerations and urban planning to enhance the shopping and service options in the community. Their main objective is to elevate the quality of life in a rural small town setting, emphasizing the significance of grocery stores and a bustling town center in Húsavík.
Keywords: residential quality, environment, urban planning, town center vitality, grocery store.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA RITGERÐ.pdf | 1,86 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |