is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Hönnunardeild / Department of Design > Ritgerðir til BA-gráðu / BA theses (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47967

Titill: 
  • Prentsmiðja Hafnarfjarðar 1946-2007
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að skoða eina af fjölmörgum prentsmiðjum sem Íslendingar hafa átt og sögu hennar. Hvernig fór undirbúningur svona prentsmiðju fram og hvað þurfti til á 20. öldinni til að setja hana á laggirnar. Guðmundur Ragnar Jósefsson, stofnandi Prentsmiðju Hafnarfjarðar, fór í ferð til New York árið 1945 þegar seinni heimstyrjöldin var að líða undir lok. Hann fór í þeim tilgangi að afla sér meiri þekkingar, skoða prentvélar og festa á þeim kaup. Hann skrifaði daglega í dagbók og sagði frá ferðalaginu og því sem hann tók sér fyrir hendur í New York. Sagt er frá verkefnum sem Prentsmiðja Hafnarfjarðar vann, sem eru mörg hver varðveitt á Þjóðskjalasafni Íslands. Steinunn Guðmundsdóttir, kona Guðmundar Ragnars, tók við rekstri prentsmiðjunnar þegar Guðmundur Ragnar lést. Hennar saga er sett í samhengi við atvinnuþátttöku kvenna og þeirra sögu innan prentiðnaðarins í lok 19. aldar og á 20. öldinni. Hlutverk prentsmiðja í samfélaginu var annað á 20. öldinni en nú og er því skoðað hvort hefðbundnar prentsmiðjur, eins og Prentsmiðja Hafnarfjarðar, geti starfað enn í dag. Notast er við ýmiss konar heimildir í verkefninu eins og bækur um sögu prents á Íslandi, ritaða ævigrein um Guðmund Ragnar og Steinunni og viðtal við Ingibjörgu, dóttur þeirra, sem síðar tók við rekstri prentsmiðjunnar ásamt systur sinni Guðrúnu.

Samþykkt: 
  • 18.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47967


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Prentsmiðja_Hafnarfjarðar_1946–2007.pdf526,26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna