is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47968

Titill: 
  • „Það er miklu erfiðara að fá karlmann til að tjá sig“ : karlkyns þolendur ofbeldis í nánum samböndum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að skoða viðhorf og úrlausn lögreglumanna í málum þar sem karlmenn eru þolendur heimilisofbeldis í gagnkynhneigðum samböndum. Leitast verður við að kanna hvort fordóma gæti á meðal lögreglumanna gagnvart karlmönnum sem þolendum heimilisofbeldis, hvort ákveðnar hindranir komi upp við vinnslu slíkra mála og hvort munur sé á afgreiðslu mála eftir því hvort þolendur heimilisofbeldis eru karl eða kona. Afleiðingar heimilisofbeldis eru alvarlegar og geta haft áhrif á ýmsa þætti í lífi fólks, meðal annars á andlega og líkamlega heilsu þeirra sem fyrir því verða. Ýmsar kenningar hafa verið settar fram við rannsóknir á heimilisofbeldi og munu þær skoðaðar sem og rannsóknir á heimilisofbeldi gegn körlum. Þá verða einnig skoðuð áhrif eitraðrar karlmennsku á þolendur í heimilisofbeldismálum og ástæður þess að karlkyns þolendur eru færri en kvenkyns þolendur í gögnum lögreglu sem og þau úrræði sem í boði eru fyrir þolendur heimilisofbeldis og skort á þeim úrræðum sem í boði eru fyrir karlkyns þolendur í heimilisofbeldismálum.

  • Útdráttur er á ensku

    The main goal of this essay is to examine the attitude and resolution of police officers in cases where men are victims of domestic violence in heterosexual relationships. Efforts must be made to investigate whether there may be a prejudice among police officers towards men who are victims of domestic violence, whether certain obstacles arise during the processing of such cases, and whether there is a difference in the handling of cases depending on whether the victims of domestic violence are men or women. The consequences of domestic violence are serious and can affect various aspects of people's lives, including the mental and physical health of those who experience it. Various theories have been put forward in research on domestic violence and they will be examined as well as research on domestic violence against men. The impact of toxic masculinity on victims in domestic violence cases will also be examined as the reasons why there are fewer male victims than female victims in police records, as well as the resources available to victims of domestic violence and the lack of resources available to male victims in domestic violence cases.

Samþykkt: 
  • 18.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/47968


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð - lögreglufræði PDF.pdf382,53 kBOpinnPDFSkoða/Opna