Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/47969
"You just need to have competence in all this : digital competence of older people in Iceland
Stafræn tækni og internetið hafa umbylt þeim heimi sem við búum í. Nýr veruleiki 21. aldarinnar hefur áhrif á flesta íbúa þróaðra samfélaga og þrýst fólki á öllum aldri til að nota internetið til daglegra athafna eins og samskipta, banka- og heilbrigðisþjónustu og fleira. Eldra fólk hefur aukið netnotkun sína á undanförnum árum og er einn þeirra hópa sem finnur hvað mest fyrir þessari tækniþróun. Rannsóknir hafa sýnt að eldra fólk skortir stafræna hæfni og færni á internetinu og mætir þ.a.l. ýmsum áskorunum sem geta haft miður góð áhrif á þau sem eiga í hlut sem og samfélagið allt. Lítið er vitað um stafræna hæfni íslenskra eldri borgara nema það hversu virkur hópurinn er á netinu. Engu að síður bendir nýleg könnun til þess að eldra fólk á Íslandi skeri sig ekki úr þegar kemur að færni á internetinu samanborið við jafnaldra þeirra erlendis og eru vísbendingar um að slíkri hæfni sé ábótavant. Rannsókn þessi varpar ljósi á netnotkun og hæfni eldri Íslendinga, með megin áherslu á að kanna hvernig auka megi stafræna hæfni þeirra og þ.a.l. öryggi, sjálfræði og velferð þeirra á netinu. Í því augnamiði voru tekin viðtöl við íslenska eldri borgara og niðurstöðurnar bornar saman við niðurstöður erlendra rannsókna. Sýnt er fram á að öll inngrip sem fela í sér þjálfun eða fræðslu í stafrænni hæfni þurfa að vera getuskipt og fara fram í raunheimum, ekki í gegnum netið. Slíkt gæti reynst kostnaðarsamt og umfangsmikið en sannarlega er til mikils að vinna fyrir þennan hóp sem og samfélagið allt. Rannsóknin hefur ákveðnar takmarkanir enda lítil í sniðum. Hún varpar engu að síður ljósi á netnotknun eldra fólks á Íslandi og stafræna hæfni þeirra. Mörgum spurningum er enn ósvarað og ljóst er að um óplægðan akur í rannsóknum er að ræða, ekki síst þegar kemur að Íslandi.
Digital technology and the internet have revolutionized the world we live in. New realities of the 21st century have affected most people in the developed world and has pushed people of all ages to use the internet more for everyday tasks such as communicating, banking, health services etc. Older people have become more avid users of the internet and are one of the groups that feel this changed reality firsthand. Studies have indicated that older people lack digital competence and skills online and thus face certain challenges on the internet which can have detrimental effect on them and even all of society. Little is known about the digital competence of the older generation in Iceland apart from that they are rather active online. However, a recent survey suggests they are no different from their counterparts outside Iceland in this regard, indicating they might lack skill and competence on the internet. Therefore, this study aims to delve into the online repertoires and competence of older people in Iceland, and more importantly, elicit ways to increase their digital competence and thus their safety, autonomy and well-being. In order to examine the aforementioned factors, older individuals were interviewed. This study demonstrates that creating an intervention program to improve older people’s digital competence that caters to their preferences would have to be differentiated, and in person. This could prove expensive and cumbersome, but very beneficial for older people themselves and all of society. The study has its limitations, but nevertheless offers insight into older Icelanders on the internet and furthermore indicates avenues worth exploring in future studies.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Haukur_Digital_competence_of_older_people_in_Iceland.pdf | 749,9 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |