is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48091

Titill: 
  • Lífsleiknikennsla á unglingastigi : hvað varð um lífsleiknikennslu í Íslenskum grunnskólum?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lífsleikni varð sjálfstæð námsgrein í Íslenskum grunnskólum árið 1999 í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og var allt til ársins 2013 er hún var felld undir greinarsvið samfélagsfræði.
    Í þessari ritgerð var kannað hvað hafi orðið um lífsleiknikennslu á unglingastigi í Íslenskum grunnskólum, allt frá upphafi greinarinnar í Íslenskum grunnskólum til dagsins í dag. Til þess að kanna þetta var upphaf greinarinnar skoðað og hugmyndir um hana, þróun aðalnámskrár grunnskóla frá árinu 1999 og útfærslur 10 mismunandi grunnskóla á lífsleiknikennslu. Þær voru svo bornar saman við þær kröfur sem gerðar eru í aðalnámskrá grunnskóla.
    Helstu niðurstöður voru þær að sá rammi sem settur er utan um lífsleikni í aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2013 er allt of laus og er til þess fallinn að viðfangsefnið geti hreinlega orðið utanveltu. Jafnframt má greina að ekki hafi orðið jákvæð þróun á námsgreininni, heldur fremur bakslag.
    Nú er árið 2024 og í ár eru 11 ár síðan að aðalnámskrá grunnskóla var síðast endurskoðuð. Þegar hún verður uppfærð á nýjan leik gæti það verið heillaspor, að stíga skref til baka og horfa til þeirrar metnaðarfullu stefnu sem var uppi þegar lífsleikni var gerð að sjálfstæðri námsgrein árið 1999, fremur en frekari samþættingar og útvötnun á námsefninu. Frekari rannsókna er þörf til þess að skoða hvernig staða lífsleikni er í grunnskólum landsins.

  • Útdráttur er á ensku

    Life skills became an independant subject in Icelandic primary schools in 1999, in accordance with international commitments. Life skills was an independant subject in primary schools up until 2013, when it became a subsection in social studies. In this thesis I explored what happend to life skills education in Icelandic primary schools, from the beginning of the subject in Icelandic primary schools up until today. To explore this I explored the beginings of the subject and it‘s ideas, the evolution of the Icelandic primary schools national curriculum from 1999 and finally I looked at school curriculums from 10 indipendant primary schools. How these 10 primary schools implemented their life skills education was then compared to the requirements made in the national curriculum. The main findings were that the framwork for life skills education presented in the national curriculum from 2013 are to vague to the extand that there is a risk of life skills education being left out. Furthermore there are some evidence that the development of the subject has not been positive but rather a setback. It‘s 2024 and during this year there will be 11 years since the national curriculum was last reviewed. When the national curriculum will be reviewed once again it might be a step in the right direction to take a step back and take a look at the ambitious direction that was taken when life skills education became an independant subject back in 1999, rather than further integrations and dilution of the subject. Further research is needed to examine the state of life skills in primary schools in the country

Samþykkt: 
  • 18.6.2024
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/48091


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ÁJR 060524 pdf.pdf508,43 kBOpinnPDFSkoða/Opna