Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48136
Upplifðu tilfinningalega og líkamlega núveru innan náttúrulegs myrkurs.
Ósnortið og náttúrlegt myrkur verður sífellt sjaldgæfara vegna inngripa mannsins: þar sem við erum þar verður ljós. Flest allt líf á jörðinni hefur skilning á ljósi og myrkri – og hafa versnandi myrkurgæði því áhrif á mannfólk og náttúru; dýr, plöntur og aðrar lífverur. Verkefnið samanstendur af búningi, ljósmyndum og hljóðverki sem stuðla að bættri tengingu við þessa sameiginlegu upplifun tegundanna á jörðu af myrkri; hinni staðbundnu núveru þeirra innan um myrkur. Í verkinu er leitast við að búa til aðstæður sem staðsetja einstakling í núinu og innan um náttúrulegt myrkur – til að njóta og líta á það sem jákvæða upplifun.
Experience the presence of natural darkness, emotionally and physically.
Today natural and uncontaminated darkness is becoming increasingly rare, attributable by us: where we are there is light. All life has a common understanding of light and darkness, and the deteriorating quality of darkness affects us and nature; animals, plants and other living organisms. The project consists of a costume, photographs and a composition to relate to this mutual experience of all species on earth: a sense of presence amidst the darkness. In the project, Being In Darkness, I strive to create a moment that takes an individual into the present amidst natural darkness, to enjoy and perceive it as a positive experience.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargreining Hekla Dís A5.pdf | 26,05 MB | Opinn | Skoða/Opna |