en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/4813

Title: 
  • Title is in Icelandic Valdbeiting í skipulagi hins byggða umhverfis
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Skipulag á hinu byggða umhverfi mannsins vísar til viðleitni yfirvalda við
    útdeilingu rýmis í almanna þágu. Þessi ritgerð mun skoða valdar greinar sem
    koma frá ólíkum fræðimönnum og á ólíkum tímum en eiga það sameiginlegt
    að skoða á gagnrýninn hátt hvernig valdbeiting á rými hefur áhrif á líf fólks og
    er athyglinni einkum beint að skipulagsfræði.
    Umfjöllunin byrjar á að skoða hvað rými er í félagsvísindum, allt frá
    Durkheim, til Chicago skólans og svo Foucault. Einnig er gefið stutt yfirlit yfir
    sögu skipulagsfræði og hvaðan nútíma skipulagsfræðingar sækja
    kenningalegan uppruna sinn frá.
    Sjónunum er þá beint að nýmarxískum kenningum um skipulag rýmis.
    Þar komu fram fræðimenn sem töldu skipulag rýmis endurgera valdasambönd
    og stéttasambönd, það er, að skipulag væri pólitískt ferli sem ákveðnir hópar
    græddu á, meðan aðrir töpuðu.
    Svipaða nálgun má sjá í póst-módernískri gagnrýni á skipulagsfræði.
    Bentu menn þar á að skipulagsfræðingar gætu ekki haldið fram hlutleysi og
    rökrænni módernískri nálgun á skipulag í heimi sem er margbreytilegur. Er þá
    kynntur til sögunnar Robert Forrester, sem leggur til samskiptanálgun á
    skipulag er tryggir jafnt aðgengi að upplýsingum og lýðræðislega umræðu.
    Undir lokin eru kynntar tillögur að þverfaglegri nálgun mannfræði og
    annarra fræðigreina að skipulagi.

Accepted: 
  • Apr 29, 2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4813


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BA_Jón Kjartan Ágústsson.pdf307.48 kBOpenHeildartextiPDFView/Open