en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/4818

Title: 
  • Title is in Icelandic Kostnaðarbókhald
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Farið verður í aðalhlutverk kostnaðarbókhalds og meginmarkmið sem fyrirtæki stefna að með upptöku þess. Kostnaðarbókhald innan fyrirtækja er nauðsynlegt svo stjórnendur fyrirtækja hafi tök á því að fylgjast náið með kostnaðarþróun allra vörutegunda sem framleiddar eru innan fyrirtækisins. Kostnaðarbókhald er skipuleg aðferð til að staðsetja hvar í fyrirtækinu kostnaður myndast, hvernig hann skiptist á milli deilda og afurða ásamt því sem mögulegt er að fylgjast með því hvenær hann skilar sér til baka sem tekjur fyrirtækis. Góð þekking á helstu tegundum kostnaðar ásamt þekkingu á því hvernig kostnaðurinn hegðar sér getur ráðið úrslitum um rekstur og afkomu fyrirtækja.
    Mistúlkun kostnaðarupplýsinga getur valdið því að kostnaður framleiðsluvara sé of- eða vanmetinn. Afleiðing þess er að afurðir eru annaðhvort látnar bera aukalegan kostnað, sem tilheyrir í raun öðrum afurðum eða að framleiðsluvörur eru látnar bera minni kostnað en ætti raunverulega að tilheyra þeim. Rangar kostnaðarupplýsingar geta haft mjög slæm áhrif á ákvarðanatöku stjórnenda. Misvísandi upplýsingar geta valdið því að stjórnendur telji vöru, sem er í framleiðslu innan fyrirtækis, skila hagnaði en skilar í raun tapi. Einnig verður farið í samanburð á hefðbundinni aðferð og verkþáttabókhaldi, þá þætti sem aðferðirnar eiga sameiginlega ásamt aðalatriðum sem skilja aðferðirnar að.

Accepted: 
  • Apr 29, 2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4818


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Sigurbjörg Kristjánsdóttir.pdf256.67 kBOpenComplete TextPDFView/Open