Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48218
Í ritgerðinni verða skoðaðar og krufnar hinar og þessar týpur af listsþenkjandi gervigreind sem teygja sig yfir vítt róf listgreina. Nýja tæknin hefur á síðustu misserum valdið usla og fjaðrafoki í myndlistaheimum þar sem hún þykir nógu langt á veg komin til að vera í beinni samkeppni við holdi klætt, starfandi myndlistafólk. Þessar ógnarhröðu framfarir listskapandi gervigreindar hafa velt af stað flóðbylgju allsherjar örvæntingar meðal listafólks og má segja að einskonar stríð gegn gervigreind sé hafið. Deilurnar eru fyrst og fremst á grundvelli meintra höfundarréttarbrota þar sem mörg forritin hafa verið þjálfuð á vörðum listaverkum oft án vitundar höfunda. Málþing í Hörpu „Tíminn líður hratt á gervigreindar-öld“ á vegum STEF var haldið í október 2023 þar sem sérfróðir fyrirlesarar greindu frá ýmsum málefnum sem snertu höfundarrétt, listþenkjandi gervigreind, reglugerðir og hugsanleg inngrip stjórnvalda. Margreyndar tilraunir að halda reglu í hinu villta vestri netheima hafa þó ekki reynst árangursríkar og því hægara sagt en gert að mati fræðinga.
Í tónlistarbransanum felast þó núverandi áhyggjuefni fyrst og fremst í því hvernig tónlistarunnendum er skömmtuð tónlist af gervigreindar-stýrðum algórytma streymisveitna. Það getur haft í för með sér að vinsælli tónlist rís enn hærra sem um leið minkar líkur á að tónlist upprennandi tónlistafólks verði uppgötvuð á veitunum.
Ljótt er að spá um framtíð gervigreindar þar sem þessi frumstæða sjálfalandi tækni er enn talin vera á spennandi frumstigi þrátt fyrir allt. Í ritgerðinni er nánast alfarið greint frá atburðarás líðandi stundar eða tiltölulega nýliðnum atburðum. Því er ómögulegt og ekki tilgangurinn að komast til botns í neinum af þessum málum, því heldur er ritgerðin kynning á fjölhliða teningnum sem listþenkjandi gervigreind er, nýjum spennandi möguleikum innan listsköpunar sem hún býður upp á ásamt vangaveltum um varhugaverða þætti hennar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Menning án manna - Lokaútgáfa.pdf | 4,41 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |