Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48254
Þessi greinargerð er byggð í kringum kennsluefni fyrir sögukennslu á unglingstigi grunnskóla þar sem unnið er með sögulega hugsun sem nálgun í kennslu. Við teljum að söguleg hugsun og innleiðing hennar í íslenska grunnskóla muni veita nemendum betri og dýpri skilning á sögunni, þeir öðlist gagnrýna hugsun, geti sett sig í spor annarra og sett atburði fortíðar í samhengi við nútímann út frá sönnunargögnum. Tilgangur þessara verkefna er að veita kennurum nýja nálgun til þess að efla sögukennslu. Í greinargerð tökum við fyrir stöðu námsgreinarinnar í dag og mikilvægi hennar. Við notuðum tvo flokka í sögulegri hugsun sem eru Orsök og afleiðing og Sögulegt sjónarhorn. Bókin The big six thinking concepts var fyrirmynd okkar þegar unnið var að verkefninu. Við útbjuggum verkefnabanka fyrir kennara sem inniheldur fjögur verkefni og kennsluleiðbeiningar sem þeir geta nýtt sér. Hér er slóð að verkefnabankanum: https://sites.google.com/view/soguleghugsun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni - B.Ed.- próf- Anton Freyr Írisarson og Axel Guðjónsson.pdf | 551,51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing- Anton Freyr og Axel Guðjónsson.pdf | 183,73 kB | Lokaður | Yfirlýsing |