is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48318

Titill: 
  • „Yfirleitt gerum við eins og aðstæðurnar sem við komum úr“ : mikilvægi stuðnings við fangelsaða foreldra
  • Titill er á ensku „Most often we do like the situations we come from“ : the importance of support for incarcerated parents
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Stuðningur við foreldrahlutverk fanga er mikilvægur í ljósi þess að stór hluti fangelsaðra foreldra varð fyrir misbresti í sínu eigin uppeldi á æskuárum, með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum fyrir þá sem foreldra. Börn sem verða fyrir misbresti í uppeldi, líkt og að upplifa áföll, verða fyrir vanrækslu eða upplifa fangelsun foreldris eiga meira á hættu að farnast verr í lífinu og leiðast út á sömu braut en önnur börn. Markmið rannsóknarinnar var að kalla eftir sýn fangelsaðra feðra af stuðningi sem býðst í afplánun og hvernig staðið er að undirbúningi fyrir foreldrahlutverkið að afplánun lokinni. Til að dýpka niðurstöður þótti mikilvægt að heyra upplifun og reynslu þeirra sem starfað hafa í fangelsismálum á Íslandi. Alls voru tekin níu hálfstöðluð viðtöl, bæði úr hópi fyrrum fangelsaðra feðra og þeirra sem starfa við fangelsismál á Íslandi. Niðurstöður rannsóknar bentu til að þeir fyrrum fangelsuðu feður sem tóku þátt í rannsókninni lýstu æsku sinni á líkan hátt. Þeir greindu frá að hafa orðið fyrir misbresti í uppeldi sínu sem stafaði af áföllum, vanrækslu eða bágum uppeldisháttum sem hafði í för með sér slitrótta skólagöngu, áhættuhegðun á unglingsárum og afbrotahegðun á fullorðins árum, sem og fangelsun. Viðmælendur greindu frá að enginn markviss stuðningur stæði til boða fyrir fangelsaða foreldra, hvorki í formi foreldrafræðslu, uppeldisráðgjafar eða annarra námskeiða tengdum foreldrahlutverkinu og sömuleiðis að enginn undirbúningur stæði til boða um hvers væri að vænta í foreldrahlutverkinu að afplánun lokinni. Undirbúningur er mikilvægur til að stuðla að farsælli endurkomu fangelsaðra foreldra út í samfélagið á ný og sömuleiðis dregur úr líkum á endurkomu þeirra í fangelsi. Af niðurstöðum má ráða að kortleggja þurfi þjónustuþörf fangelsaðra foreldra, sem oft á tíðum koma úr hörðum bakgrunni, eiga við fjölþættan vanda að stríða sökum þess og þurfa stuðning og leiðsögn í foreldrahlutverkinu. Þörf er á sérfræðingum úr velferðarkerfinu til að styðja við fangelsaða foreldra en einnig sérstökum barnafulltrúum sem hafa það markmið að styðja og hlúa að börnum fangelsaðra foreldra. Með því að styðja við fangelsaða foreldra, verða börn þeirra fyrir minni skaða af völdum fangelsunar foreldris en ella, sem þar af leiðandi dregur úr líkum á keðjuverkun fangelsunar.

  • Útdráttur er á ensku

    Support for parental roles of prisoners is important considering that a large portion of incarcerated parents experienced parenting dysfunction in child maltreatment in their own upbringing during childhood, with resulting negative consequences for them as a parent. Children who experience maltreatment and dysfunctional parenting styles, such as experiencing trauma, neglect, or the incarceration of a parent, are at greater risk of experiencing difficulties in life and falling into the same cycle. The aim of the research was to gather the perspectives of incarcerated fathers on the support available during incarceration and how preparation for parental roles is approached post-release. To deepen the findings, it is crucial to hear the experiences of those who have worked in the field of corrections in Iceland. A total of nine semi-standard interviews were conducted, both from former imprisoned fathers and those who work in the field of correction in Iceland. The main findings indicate that similarities were observed among the childhoods of incarcerated individuals. Childhoods were marked by parenting deficiencies such as trauma, neglect, poor parenting styles. Parenting deficiencies reported by respondents led to troubled school exsperiences, risky behavior and delingquent behavior, as well as incarcearation. Respondents reported that no targeted support is available for incarcerated parents, neither in the form of parenting education, parental counseling, nor other courses related to parenting roles post-release. Furthermore, there is no preparation available regarding what to expect in the parental role after release. Preparation is crucial to promote the successful reintegration of incarcerated parents into society and reduce the likelihood of their return to prison. Based on the findings, it is advisable to point out the service needs of incarcerated parents, who often come from disadvantaged backgrounds, face complex challenges, and require support and guidance in their parental roles. There is a need for specialists from the welfare system to support incarcerated parents and also dedicated child advocates, whose goal would be to support and care for the children of incarcerated parents. By supporting incarcerated parents is essential to minimize the harm experienced by their children due to parental incarceration, thereby reducing the likelihood of a cycle of intergenerational incarceration.

Samþykkt: 
  • 7.8.2024
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/48318


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skemman_yfirlysing - Selma Döggx.pdf228,15 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Selma Dögg - meistaraverkefni-15 maí.pdf860,02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna