is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48375

Titill: 
  • „Kynfræðsla ætti að hafa meira vægi“ : viðhorf grunnskólakennara til kynfræðslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarritgerðarinnar er að kanna viðhorf grunnskólakennara til kynfræðslu í kjölfar umræðu sem átti sér stað í samfélaginu um námsbókina Kyn, kynlíf og allt hitt. Rannsóknin er eigindleg og tekin voru viðtöl við fimm kennara sem kenna kynfræðslu á höfuðborgarsvæðinu. Fáar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hér á landi á viðhorfum kennara sem kenna kynfræðslu. Helstu niðurstöður sýna fram á að viðmælendur eru fullir eldmóðs fyrir kynfræðslu þegar þeir fjalla um mikilvægi hennar út frá þeirra eigin upplifunum og reynslu í skólastarfi. Þrátt fyrir gagnrýni á kynfræðslu frá samfélaginu var viðhorf grunnskólakennara til kynfræðslu jákvætt. Það var þó margt sem viðmælendur telja enn ábótavant. Viðmælendur tóku allir skýrt fram að auka þurfi vægi kynfræðslu innan aðalnámskrár og íslenskra grunnskólalaga. Niðurstöðurnar sýna einnig að meiri vinna lendir á herðum kynfræðslukennara þar sem hana þarf að kenna innan annarra námsgreina. Þar af leiðandi þurfa þeir að hliðra til viðfangsefnum í öðrum námsgreinum til að skapa rými fyrir kynfræðslu. Það kom einnig í ljós að mikill skortur er á Íslandi á hagnýtu námsefni fyrir kynfræðslu og vöntun er á utanumhaldi á því sem er nú þegar til. Þessa rannsókn mætti nota sem rökstuðning fyrir því að kynfræðsla fái meiri vægi sem kallar á breytingar á aðalnámskrá. Einnig mætti nota hana til sýna fram á vöntun á meiri námsefni og að það þurfi að svara ákalli kennara og nemenda um bætta kynfræðslu á Íslandi.

Samþykkt: 
  • 12.8.2024
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/48375


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Landsbókasafn Islands (1).pdf200,01 kBLokaðurYfirlýsingPDF
lokaritgerd.pdf456,33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna