Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/48376
Þetta verkefni er lokaverkefni til B.ed. -prófs í Grunnskólakennarafræði við Deild faggreinakennslu í stærðfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í þessu verkefni var unnið við þýðingu og staðfærslu leiðsagnarmatsverkefnis um jöfnur með einni óþekktri breytistærð. Markmið verkefnisins var að efla nemendur í því að búa til jöfnur og að leysa þær. Hér er stuðst við hugmyndina að það að kunna að búa til jöfnur gefur grunn að því að skilja hvernig á að leysa þær. Verkefnið er unnið að hluta til í formi umræða og hópavinnu sem styður við skilning. Algebruskilningur er stór stofn áframhaldandi náms í stærðfræði.
Verkefnið sem lagt var fyrir byggir upp skilning á því hvernig leysa skal jöfnur með einni óþekktri stærð. Í fræðilega hluta verkefnisins er sagt frá því hvernig verkefnið var þýtt og staðfrært og gagnsemi leiðsagnarnáms, hópvinnu og umræðna í stærðfræði. Verkefninu er skipt upp í sjö hluta, þ.a. þrjú skrifleg verkefni, paraumræður og þrennar bekkjarumræður. Þar fara nemendur í það hvernig búa skal til jöfnur, hvernig líta skal á jöfnur og hvernig leysa skal jöfnur. Sagt verður frá fyrirlögn, kennslu og vinnu nemenda.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Loka-lokaverkefni<3.pdf | 5,48 MB | Open | Complete Text | View/Open | |
Skemman_yfirlysing copy.pdf | 185,75 kB | Locked | Declaration of Access |