Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48411
Þessi rannsókn er unnin til B.Ed. prófs í grunnskólakennslu með áherslu á samfélagsgreinar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknin er eigindleg og fjallar um upplifun kennaranema í vettvangsnámi með áherslu á samskipti þeirra við leiðsagnarkennara sinn. Leiðsagnarkennarar gegna mikilvægu hlutverki í vettvangsnámi kennaranema og þess vegna er mikilvægt að skoða upplifun kennaranema af þeim. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða leiðsagnarkennara, sjá hvernig þeir eru að standa sig og sjá hvað einkennir góða leiðsögn. Einnig er tilgangur rannsóknarinnar að safna sögum af reynslu kennaranema af vettvangsnámi. Einblínt er á þá áhrifaþætti sem hafa áhrif á faglega líðan kennaranema í vettvangsnámi, upplifun kennaranema á sínum leiðsagnarkennara og hvað einkennir góðan leiðsagnarkennara, samkvæmt kennaranemum. Notast var við hálfstöðluð viðtöl (e. Semistructured interview) sem rannsóknaraðferð og afleiðandi þemagreiningu (e. Deductive thematic analysis) sem gagnagreiningu. Þátttakendur rannsóknarinnar voru fjórir. Þrjár konur og einn karl. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að að það eru góðir leiðsagnarkennarar sem taka á móti kennaranemum í vettvangsnámi og það eru ákveðnir þættir sem einkenna vel heppnaða leiðsögn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.docx.pdf | 384,41 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing (1).pdf | 100,08 kB | Lokaður | Yfirlýsing |