is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48432

Titill: 
  • Minecraft í kennslu : notkun Minecraft Education í kennslu samfélagsgreina
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta er verkefni sem er tíu eininga lokaverkefni. Verkefnið er hefðbundin rannsóknarritgerð sem fjallar um Minecraft tölvuleikinn í námi og kennslu, nýtingu leiksins, kosti og galla. Byggt verður á fræðilegum heimildum sem fjalla um tölvuleiki í námi og kennslu og notkun tölvuleiksins Minecraft í menntun, bæði erlendis en einnig á Íslandi. Með vaxandi áhuga nemenda á tölvuleikjum er mikilvægt fyrir kennara að reyna að vinna með þann mikla áhuga og skipuleggja kennslu út frá því. Notkun Minecraft í skólum erlendis hefur aukist mikið undanfarin ár og á kennslumiðaða útgáfa leiksins, Minecraft Education, stóran þátt í þeirri aukningu. Athafnakostir leiksins bjóða upp á mikla möguleika í kennslu samfélagsgreina, ásamt flestum öðrum námsgreinum. Kennarar geta annað hvort búið til eigin kennsluáætlanir innan leiksins eða fundið tilbúnar kennsluáætlanir á vef Minecraft Education sem búnar eru til af kollegum þeirra. Þessar tilbúnu kennsluáætlanir gera kennurum kleift að fara strax út í kennslu á ákveðnum viðfangsefnum, en mikilvægt er engu að síður fyrir kennara að kynna sér spilunarhætti leiksins fyrst áður en kennsla hefst. Tölvuleikjaspilun nemenda hefur aukist mikið undanfarna áratugi og er því mikilvægt að nýta þennan áhuga í skólastarfi til þess að bjóða upp á fjölbreytileika í námi og kennslu.

Samþykkt: 
  • 15.8.2024
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/48432


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Baldur_Snær_Matthíasson_BEd_lokaskil.pdf3,77 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman_yfirlysing.pdf215,53 kBLokaðurYfirlýsingPDF