Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48436
This paper studies the medieval ancestry and folkloric attestations of the puck figure in English, Icelandic and Irish traditions as a distinct supernatural entity outside of Shakespearean thought and one that has received little scholarly attention besides the debate of origins. The English puck figure is first found in Anglo-Saxon place name evidence, especially those featuring watery landmarks. Aside from toponymic evidence, the medieval English puck also arises in areas such as surnames, glosses and later literature and these sources depict the medieval English puck as a predominantly malevolent supernatural being associated with the landscape and regionally significant to the south of England. Medieval Icelandic literary sources predominantly depict the púki within the Augustinian framework of demonisation, however some nuances of the púki can be ascertained in Þorsteins þáttr skelks which depicts this being as malevolent and tied to a specific place, but also with an ambiguous corporeality, nocturnal nature and a connection to a different plane of existence. The medieval Irish púca proves elusive due to the restrictive nature of Old Irish writing. However, late medieval place name evidence and the appearance of other similar supernatural entities in medieval Irish literature indicates that the púca likely existed in medieval Irish folk consciousness. Employing folkloric evidence from each tradition then demonstrates how the puck figure survived and flourished idiomatically in each culture. The present study systematically presents and elucidates the evidence for the medieval puck figure in North Atlantic Europe thus demonstrating both the vibrant life of the puck outside of Shakespearean characterisation and his consistent, but not central, place in the folklore of these cultures from medieval to present times.
Í ritgerðinni er litið til ólíkra birtingarmynda þeirrar yfirnáttúrulegu þjóðtrúarvættar sem nefnist púki og hvernig hann birtist okkur í miðaldabókmenntum jafnt sem þjóðsögum síðari alda innan enskrar, íslenskrar og írskrar hefðar, án tengingar við sambærilegt fyrirbæri í sagnaheimi Shakespeares; að því samhengi slepptu hefur púkinn hlotið litla fræðilega athygli að öðru leyti en því sem snýr að hugmyndum um uppruna hans. Í ensku samhengi kemur púkinn (puck) fyrst fyrir í engilsaxneskum örnefnum, einkum þeim sem tengjast vatni eða votlendi. Burtséð frá landfræðilegum upplýsingum má þó finna vísbendingar um hann í eiginnöfnum (einkum eftirnöfnum), stökum skýringargreinum og yngri bókmenntum. Allt eru þetta heimildir frá miðöldum og benda þær til þess að púkinn sem þjóðtrúarfyrirbæri sé fyrst og fremst yfirnáttúruleg óvættur með sterka tengingu við landslag og að sem slík hafi hún gegnt sérlega mikilvægu hlutverki á sunnanverðu Englandi. Í íslenskum miðaldaheimildum fellur púkinn í flestum tilvikum innan kenningakerfis kirkjunnar þótt finna megi dæmi um óljósari línur í Þorsteins þætti skelks, þar sem púkinn er óvinveittur og bundinn sérstökum stað, jafnframt því sem tilverustig hans og líkamleg birtingarmynd eru óræð, enda er hann tengdur nóttinni sérstaklega. Að sama skapi er erfitt að henda reiður á írska miðaldafyrirbærinu púca, ekki síst vegna takmarkaðrar ritmenningar á fornírsku máli. Á hinn bóginn benda örnefni frá síðmiðöldum sem og sambærilegar vættir í írskum miðaldabókmenntum til þess að púkinn hafi verið kunnur fólki á miðöldum. Með því að notast við þjóðfræðilegar heimildir frá hverju menningarsvæði fyrir sig má sýna fram á hvernig ímynd púkans hefur lifað og dafnað innan hverrar hefðar. Í rannsókninni er farið með markvissum hætti í gegnum þau dæmi sem varpa ljósi á tilvist púkans sem þjóðtrúarvættar frá miðöldum á landsvæðum sem liggja að Norður-Atlantshafi í þeim tilgangi að sýna fram á fjölbreytta og stöðuga tilvist hans – en þó ekki miðlæga – í þjóðfræðaefni þessara menningarsvæða frá miðöldum og fram á síðari aldir. Öll hefur þessi varðveisla átt sér stað utan við ramma Shakespeares-hefðarinnar, þar sem púkinn fer með eftirminnilegt hlutverk.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
SAC_Puck's_Medieval_Ancestry_MA_Thesis.pdf | 745,44 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Declaration for Skemman.pdf | 815,43 kB | Lokaður | Yfirlýsing |