Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/48437
Í þessari ritgerð verður gerð athugun á því hvernig umboðsmaður Alþingis hefur í úrlausnum sínum túlkað 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 (hér eftir „stjórnarskráin“). Í upphafi verður gerð örstutt grein fyrir lykilhugtökum og fjallað um lögskýringar almennt. Í kjölfarið verður fjallað almennt um túlkun íslensku stjórnarskrárinnar og fyrirferðamestu kenningar um skýringar stjórnarskráa. Þá verður stutt almenn umfjöllun um 71. gr. stjórnarskrárinnar og að auki um 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (hér eftir „MSE“). Að lokinni framangreindri umfjöllun um almenn atriði verður vikið að túlkun umboðsmanns Alþingis á 71. gr. stjórnarskrárinnar í álitum sínum. Verða viðeigandi álit reifuð í því sambandi og athuguð m.a. með hliðsjón af viðteknum lögskýringaraðferðum. Að lokum verða dregnar saman helstu niðurstöður.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-Ritgerd-JP-Final.pdf | 434,33 kB | Locked Until...2026/01/20 | Complete Text | ||
skemma-utfyllt.pdf | 149,35 kB | Locked | Declaration of Access |