Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48541
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.- prófs, kannað verður hver áhrif samfélagsmiðla eru á börn á grunnskólaaldri. Með mikilli aukningu á notkun samfélagsmiðla er mikilvægt að fylgjast með hvort einhverjar afleiðingar fylgi og markmið ritgerðarinnar er að komast að því. Farið verður yfir rannsóknir sem framkvæmdar eru á Íslandi til þess að kanna líðan grunnskólabarna. Rannsóknir sýna að samfélagsmiðlar hafa bæði jákvæð og neikvæð áhrif á sjálfsmynd barna og unglinga en þau neikvæðu vega þyngra. Mörg börn sýna óábyrga notkun samfélagsmiðla sem getur haft bein áhrif á sjálfsmynd þeirra og annarra barna sem erfitt er að vinna úr. Mikilvægt er að kenna miðlalæsi og að kennarar og foreldrar barna séu meðvitaðir um hvað þau gera á samfélagsmiðlum og viti hverjar afleiðingar þess geta verið. Niðurstöður sýna að foreldrar og forráðamenn verða að vita hvenær á að grípa börnin og meiri fræðslu þarf í grunnskóla landsins og á heimilin um notkun samfélagsmiðla og áhrif þeirra á sjálfsmyndina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed lokaverkefni birtamfalsd. 2024.LOKA .pdf | 311,93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing- Birta Falsdóttir .pdf | 1,6 MB | Lokaður | Yfirlýsing |