Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48729
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna félagslegan stuðning og þjónustuþörf þeirra sem fá viðhaldsmeðferð eða skaðaminnkandi lyfjameðferð eftir að hafa ánetjast morfínskyldum lyfjum með því að skoða félagslegan stuðning, búsetu og væntingar fólks sem hlýtur slíka meðferð á Íslandi. Umræða síðastliðinna ára um þjónustu í málefnum fólks sem glímir við vímuefnavanda er í auknum mæli farin að byggja á hugmyndafræði skaðaminnkunar. Vaknaði því upp áhugi á að kanna
hver reynsla og óskir þeirra sem glíma við morfínvanda væru og hvaða úrræði standa þeim til boða. Sjónum er fyrst og fremst beint að upplifun einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð eða skaðaminnkandi lyfjameðferð á Íslandi, hvaða þjónusta er í boði og hver reynslan er af þjónustunni. Rannsóknin er eigindleg rannsókn og voru tekin viðtöl við tíu einstaklinga sem ánetjast hafa morfínskyldum lyfjum
ásamt lækni sem starfar á sjúkrahúsinu Vogi. Viðtölin voru tekin á tímabilinu 1. október til 26. október árið 2023. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að almenn ánægja sé meðal fólks sem fær viðhaldsmeðferð á Íslandi og snýr gagnrýni að ólíkum lyfjameðferðum sé ábótavant og félagslegur stuðningur sé ekki að fullnægja þörfum þeirra. Að mati viðmælanda sneri stærsta áskorunin að félagslegum aðstæðum og stuðning sem hafði afgerandi áhrif á lífsgæði þeirra sem njóta meðferðarinnar.
Lykilorð: lífsgæði, morfínvandi, viðhaldsmeðferð, notendasamráð, valdefling, skaðaminnkun
The aim of this study was to investigate the social support and service needs of those who receive opioid substitution therapy or harm reduction drug treatment after becoming addicted to morphine-related drugs by examining social support, residence, and expectations of people receiving such treatment in Iceland. Recent discussions regarding
services for individuals facing substance abuse issues have increasingly been grounded in the approach of harm. I treat my interest in exploring the experiences and wishes of those who struggle with morphine problems and what resources are available to them. The focus is primarily on the experience of individuals who receive opioid substitution therapy
or harm reducing drug therapy in Iceland, what services are available, and what the experience is with the services. The study is a qualitative study, and interviews were conducted with ten persons who have taken morphine-related drugs under the supervision with a doctor who works at the Vogur hospital. The interviews were conducted between October 1 and October 26 in 2023. The results of the study indicate that there is general satisfaction among people who receive opioid substitution therapy in Iceland and criticize that different drug treatments are lacking, and that social support does not satisfy their needs. The biggest challenge was social situations and support that had a decisive impact on the quality of life of those benefiting from the treatment.
Keywords: quality of life, morphine problem, opioid substitution therapy, user consultation, empowerment, harm reduction
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA_LOKA_anr23.pdf | 620,92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_til_skemmu_eiginhandararitun.pdf | 175,83 kB | Lokaður | Yfirlýsing |