Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48731
Persónuröskun með óstöðugum geðbrigðum (PÓG), einnig kölluð
jaðarpersónuleikaröskun (e. Borderline personality disorder (BPD), eða
Emotionally unstable personality disorder (EUPD)), einkennist af óstöðugleika í samskiptum, truflun á sjálfskennd og hvatvísi í hegðun. Líðan er sveiflukennd og ótti við að vera hafnað mikill. Skammvinn einkenni geðrofs geta einnig verið til staðar. Sjálfsskaði er algengur og um 60-70% einstaklinga með PÓG reyna sjálfsvíg einhvern tíma á ævinni. Hættan á sjálfsvígi er meira en tíu sinnum hærri en hjá samanburðarhópum án geðraskana. Fólk með persónuleikaraskanir úr klasa B, eins og PÓG, hefur lægri lífslíkur sem nemur 13 árum fyrir karlmenn og 9 árum fyrir konur.
Viðmiðunarmeðferðin við PÓG er díalektísk atferlismeðferð (DAM) en hún
tekur 6-8 mánuði og biðtími um þessar mundir eru 3-4 mánuðir.
Biðtími eftir réttri meðferð getur reynst erfiður á margan hátt og vanlíðan vegna tilfinningalegs óstöðugleika haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir einstaklinginn og aðstandendur hans. Að auki eru bráðar innlagnir kostnaðarsamar og leiða yfirleitt ekki til rénunar einkenna. Í ljósi þess var ákveðið að skoða hvort stutt inngrip hefðu reynst gagnleg í að draga úr tíðni einkenna meðal einstaklinga með PÓG.
Gerð var leit að heimildum í þremur gagnagrunnum og 11 fræðigreinar
metnar. Niðurstöður voru samþættar og settar fram í tillögu að nýju
þjónustulíkani.
Stutt inngrip í formi 3-9 viðtala, eða í hópum með áherslu á streituþol og færni í tilfinningastjórnun gætu reynst gagnlegt millistig milli bráðrar þjónustu og/eða innlagna og langrar DAM-meðferðar.
Frekari skoðun á styttri inngripum sem skilað hafa árangri fyrir hópinn sem um ræðir er nauðsynleg. Innleiðing á stuttu inngripi gæti skilað sér í bættri geðþjónustu fyrir viðkvæman hóp og verið eflandi fyrir fagfólk.
Borderline personality disorder (BPD), also known as Emotionally Unstable Personality Disorder (EUPD) is characterised by unstable interpersonal relationships, disturbances of self-image and impulsive behaviour. Also, by rapid fluctuations in mood and a fear of abandonment. Transient symptoms of psychosis may also be present. Self-harm is common and 60-70% of individuals with BPD attempting suicide at some point in their lives. Risk of suicide is more than ten times higher than in healthy controls without mental illness. People with cluster B personality disorders, such as BPD, have a lower life expectancy of 13 years for men and 9 years for women.
Treatment of choice for BPD is Dialectical Behaviour Therapy (DBT) which takes 6-8 months and currently has a waiting list of 3-4 months in Iceland. Waiting times for treatment can be difficult in many ways, and distress due to emotional instability can have serious consequences for the individual and their loved ones. In addition, acute admissions are costly and usually do not result in symptom relief. In light of this, it was decided to examine whether brief interventions had proved beneficial in reducing the incidence of self-harm and other symptoms of BPD.
A search was conducted in three databases and 11 academic papers were
evaluated. The results were integrated and presented in a proposal for a new service model.
Brief interventions in the form of 3-9 interviews, or in groups focusing on stress tolerance and emotion regulation skills could prove to be a useful intermediate step between acute care and/or admission and DBT therapy. Further examination of brief interventions that have yielded results for the group in question is necessary. Implementation of a brief intervention could result in improved psychiatric services for this vulnerable group and be empowering for professionals
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Meistararitgerd Ragnheiður H. Eiríksdóttir Bjarman LOKA.pdf | 935,27 kB | Opinn | Skoða/Opna |