is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/48747

Titill: 
  • ,,Það er ekki hægt að lækna alla hluti með ást og kærleika".
  • Fósturrof: Upplifun fósturforeldra.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Upplifun fósturforeldra á fósturrofi hefur ekki verið rannsökuð hér á landi og hafa fáar erlendar rannsóknir verið gerðar. Fósturrof á sér stað þegar fósturbarn flyst af fósturheimili áður en fóstursamningi lýkur. Í þessari rannsókn sjónum beint sérstaklega að reynslu og upplifun fósturforeldra á Íslandi af því að ganga í gegnum fósturrof. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru djúpviðtöl við sjö einstaklinga sem allir höfðu gengið í gegnum fósturrof.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fósturrof hefur djúpstæð áhrif á líf fósturforeldra og vekur upp sterkar tilfinningar, svo sem sorg og skömm. Meginástæður fósturrofs að mati fósturforeldra tengjast hegðunarvanda fósturbarnanna, ófullnægjandi stuðningur og skortur á upplýsingum frá barnaverndarþjónustu. Upplifa þátttakendur einnig óvissu og vantraust í garð barnaverndarkerfisins, sem veldur auknu álagi og áskorunum fyrir þá. Undirstrika niðurstöður rannsóknarinna mikilvægi þess að veita fósturforeldrum aukna fræðslu, meiri stuðning og að reglubundin eftirfylgni, samstarf og samskipti sé með fósturmálunum og sérstaklega þegar vísbendingar koma fram um að fósturrof gæti verið í uppsiglingu.
    Aðgerðir sem miða að því að draga úr tíðni fósturrofa geta falið í sér sérhæfða ráðgjöf, betri upplýsingagjöf og hegðunarúrræði fyrir börn. Niðurstöðurnar leggja áherslu á þörfina fyrir kerfisbundnar breytingar eins og tilmæli eða reglur samstarf og samskipti aðila sem geti stuðlað að meiri stöðugleika og betri upplifun allra sem tengjast barnaverndarkerfinu, þá sérstaklega í tengslum við fósturmál. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægt og að nokkru vanrækt viðfangsefni á Íslandi og getur lagt grunn að frekari rannsóknum og úrbótum innan barnaverndarkerfisins og málefna fósturbarna.

Samþykkt: 
  • 25.11.2024
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/48747


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
25.11.2024, 12_22 Microsoft Lens.jpg163,38 kBLokaðurYfirlýsingJPG
MA_adb21_Ada.Björnsdóttir_loka.pdf611,32 kBLokaður til...01.07.2025HeildartextiPDF