en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/48799

Title: 
  • Title is in Icelandic Að standa reikningsskil ráðsmennsku sinnar. Er tilefni til að lögfesta refsiábyrgð vegna brota á upplýsingaskyldu ráðherra?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 fer Alþingi með eftirlit með framkvæmdarvaldi og er það eitt meginhlutverk þingsins. Þörf fyrir þingeftirliti hefur aukist síðustu áratugi vegna aukins umfangs framkvæmdarvalds. Forsenda þess að þingmönnum sé unnt að framfylgja þessari grunnskyldu sinni er að ráðherrar veiti þinginu þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo það geti gegnt hlutverki sínu samkvæmt stjórnarskrá og veiti þinginu hvorki rangar né villandi upplýsingar. Í kjölfar bankahrunsins á Íslandi árið 2008 var talin þörf fyrir að styrkja eftirlitshlutverkið til muna og í því samhengi hefur upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra einkum verið veitt athygli. Í þessari ritgerð verða ýmsir vinklar þeirrar skyldu kannaðir með það að markmiði að skoða hvort tilefni sé til að lögfesta refsiábyrgð vegna brota ráðherra á þeirri upplýsingaskyldu sem á honum hvílir.

Accepted: 
  • Dec 17, 2024
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/48799


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
LOKASKIL BA-ritgerð Gréta Dögg.pdf421,99 kBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna LÍ.pdf61,3 kBLockedDeclaration of AccessPDF