is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49115

Titill: 
  • Titill er á ensku Computational Fluid Dynamics Simulation of a Fluid Assisted Transfer System
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þegar fiski flök eru unnin þá þurfa flökin reglulega að vera flutt yfir bil á færiböndum. Þessi bil geta verið staðsett víðsvegar, t.d. á milli vinnslu búnaðs, þar sem verða stefnu breytingar o.s.frv. Þessi bil mega ekki vera yfir ákveðnum mörkum, annars er mikil hætta á að flök stífli framleiðslulínuna eða að þau falli á gólfið sem getur haft mikil áhrif á heildar framleiðslu. Sú lausn sem hefur almennt verið árangursríkust er að nota eins þunn færibönd og mögulegt er til að minnka bil milli færibanda í viðráðanlega breidd. Hinsvegar hefur innleiðing á vatnsskurði á stál-möskva færiböndum, sem þurfa að vera þykkri en hefðbundin færibönd, ollið því að bilin milli færibanda eru komin yfir krítísk mörk sem eykur gríðarlega líkurnar á að það mistakist að færa flök á milli bilsins. Þar af leiðandi hefur Marel Hf. þróað flutningskerfi þar sem háþrýstiloft er notað til að fleyta flökum yfir nokkuð stór bil. Háþrýstiloft er dýrt og því er mikilvægt að nota eins lítið loft og mögulegt er. Markmið þessarar ritgerðar var að greina flæði kerfisins með CFD hugbúnaðinum OpenFOAM fyrir tiltekna uppsetningu og greina kraftinn sem verkar á flak með mismunandi inntaksþrýstingi. Hermilíkan sýndi að krafturinn sem verkar á flak virðist vera í línulegu sambandi við inntaksþrýsting og að hægt væri að auka massaflæði í gegnum kerfið með bættri hönnun á stút. Engar tilraunir voru gerðar, og engin tilraunagögn eru til staðar sem stendur sem staðfesta þessar niðurstöður.

Samþykkt: 
  • 27.1.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49115


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LokaritgerðVélaverkfræðiMSBJÓ.pdf1,21 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
YfirlýsingBJÓ.pdf203,84 kBOpinnYfirlýsingPDFSkoða/Opna